149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

staða, þróun og framtíð íslenska lífeyrissjóðakerfisins.

[11:37]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Guðjóni Brjánssyni, fyrir að hefja þessa umræðu. Lífeyrissjóðakerfið er nefnilega eitt öflugasta akkerið í íslenska fjármálakerfinu og gríðarlega mikilvægt sem slíkt. Við skulum ekki gleyma því að þetta akkeri skipti verulegu máli til að mynda í fjármálahruninu og hefðum við væntanlega staðið verr á þeim tímapunkti ef við hefðum verið með venjulegt gegnumstreymiskerfi.

Kerfið er ágætt, það er hannað að íslenskum aðstæðum, en það er ekki gallalaust. Eitt af því sem mér þykir vera galli á kerfinu er að það viðheldur í rauninni þeirri tekjuskiptingu og eignaskiptingu sem verður til á ævi manns. Kerfið sem slíkt gerir mjög lítið í því að reyna að vinda ofan af þeim vanda þegar það tekur við fólki á lífeyrisaldri.

Þá erum við komin að samspili almannatryggingakerfisins og lífeyriskerfisins. Í rauninni má segja, eins og hv. þm. Óli Björn Kárason kom inn á áðan, að almannatryggingakerfið sé gegnumstreymisþátturinn í lífeyriskerfi okkar. Ég tel a.m.k. ekki ástæðu til að ganga lengra í þeim efnum, að fara lengra í þá gegnumstreymisátt.

Það er hins vegar mikilvæg umræða sem við þurfum að taka, og ég er frekar opinn fyrir henni, hvernig við getum skoðað að lífeyrissjóðirnir komi að innviðafjárfestingum í samfélagi okkar. Það gæti verið mjög dýrmætt framlag þeirra einmitt í þessa tekjujöfnunar- (Forseti hringir.) og kjarajöfnunarátt sem mér þykir mikilvægt að lífeyrissjóðirnir taki þátt í.