149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

náttúruvernd.

82. mál
[13:45]
Horfa

Flm. (Ásmundur Friðriksson) (S) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrirspurnina. Ég er reyndar ekki með lögin fyrir framan mig og get því ekki lesið beint upp úr þeim. Hér er ekki átt við það þegar fólk er að keyra og sér karamellubréf koma út um gluggann, þótt það sé náttúrlega algjörlega galið að slíkt skuli gerast. Fyrst og fremst er verið að tala um þegar um vítaverða háttsemi er að ræða gagnvart umhverfinu. Við höfum tekið eftir því, og þá vitna ég í reynslu mína, að á sínum tíma þegar gjaldtaka hófst í sorpbrennslu á Suðurnesjum fór að bera á því að fólk henti rusli við heiðina. Það fór keyrandi á bílum þangað til að spara sér einhverjar krónur við að eyða sorpinu. Það er fyrst og fremst átt við svona.

Varðandi þau annars ágætu lög sem er vitnað í teljum við flutningsmenn að til þess að fólk sinni þessu þurfi að setja inn sektarákvæði, til að hræða fólk frá því að henda ónýtu sófasetti á almannafæri þegar það kostar einhverja krónur að koma því í sorpbrennslu. Það er sú hugsun fyrst og fremst sem er á bak við þetta. Við erum hreinlega bæta sektarákvæði inn í hin annars ágætu lög til að þau virki betur en okkur finnst þau hafa gert hingað til. Því miður er ég ekki með lagabálkinn hérna við hliðina á mér og get því ekki lesið upp úr honum fyrir hv. þingmann til þess hún að fá samhengi hlutanna, sem hefði verið réttara af mér að gera.