náttúruvernd.
Þakka þér fyrir, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir. Það er rétt að ekki er mikið að græða á greinargerðinni, enda tók ég þetta beint upp eins og það var flutt áður. Það er ekki hægt gera grein fyrir því í smáatriðum í þingsal eða í stuttri greinargerð hvernig slíku eftirliti yrði háttað. Ég held t.d. að á hálendinu þyrftu landverðir að geta fylgst með því hvernig fólk gengur um og hafa tök á því benda á lögreglu. Það er mjög auðvelt fyrir okkur þingmenn að setja lög og vísa svo bara á lögreglu og segja að hún sjái um þetta. Við heyrum í öðrum ræðum að lögreglan hefur nóg að gera, þau eru ekki nógu mörg og hafa kannski þarfara verki að sinna en að fylgjast með því hverjir henda rusli.
Ég bendi á að við sjálf þurfum líka að líta í eigin barm í því. Það er ekki langt síðan að ég keyrði á eftir bíl í heimabæ mínum og þá kom fljúgandi út um gluggann stór poki merktur veitingastað í bænum, stór plastpoki með öllu gumsinu innan í. Ég stoppaði og tók pokann. Svo keyrði ég eftir bílnum þangað til ökumaðurinn stoppaði, hljóp út og vakti athygli hans á því að hann hefði misst pokann. Ég hafði auðvitað ekki tök á að gera annað en að benda ökumanninum á að hann væri týna verðmætum hlutum, sorpi sem átti að vera á öðrum stað en á götunni þar sem almenningur keyrir um. Þetta er því líka til að vekja athygli okkar á umhverfinu og til að við líðum ekki nágrannanum að ganga um eins og honum sýnist.
Ég geri mér algjörlega grein fyrir því að það verður erfitt fyrir lögregluna að bæta slíku eftirliti á sig. En við þurfum samt að hafa leiðir til þess að geta í alvarlegustu tilfellum kært viðkomandi til lögreglu, svo að sektarákvæðin virki og fælingarmáttur laganna virki á (Forseti hringir.) þá sem eru sóðar.