náttúruvernd.
Frú forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni, Ásmundi Friðrikssyni, fyrir framsöguna og flutningsmönnum fyrir að leggja þetta mál fram. Ég tel að þarna sé á ferðinni afar mikilvægur boðskapur í samhenginu umgengni og náttúruvernd.
Mig langar hins vegar að inna hv. þingmann eftir því hvort orðalagið í 1. gr. frumvarpsins sé óþarflega þröngt, þ.e. talað er um hálendið. Það er þá afmarkað sérstaklega og á þá væntanlega ekki við t.d. um Þingvelli eða þjóðgarða eða eitthvað þess háttar.
Ætti orðalagið kannski að vera aðeins víðara, t.d. að tala um náttúru landsins, víðavang, eitthvað þess háttar, til að mæta þessum sóðum, eins og hv. þingmaður kallaði þá, alls staðar þar sem þeir rusla til, skulum við segja? Því að það er svo sannarlega ekki bara á hálendinu, það er ekki bara í kringum þjóðvegina, það getur verið víðar. Við getum tekið svæði eins og eina af náttúruvinjum höfuðborgarsvæðisins, Heiðmörk, þar sem fólk velur gjarnan, því miður, að losa sig við rusl í hugsunarleysi og skilja það eftir.
Ég tel að þetta mætti víkka aðeins. Ég velti fyrir mér hvaða skoðun þingmaðurinn hefur á því, hvort honum finnist að hv. umhverfis- og samgöngunefnd ætti að skoða það sérstaklega.