vistvæn opinber innkaup á matvöru.
Hæst. forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir ágætisandsvar. Íslenskir bændur hafa verið mjög metnaðarfullir í því að framleiða gæðavöru. Það held ég að ég geti fullyrt hér algerlega kinnroðalaust. Í heildina séð hafa menn náð alveg gríðarlega miklum og góðum árangri.
Við erum að tala um lífrænan, vistvænan búskap og hugtökin flækjast stundum svolítið fyrir okkur. En allt í einu erum við farin að tala um lífrænan búskap sem eitthvað sérstakt, en hefðbundinn búskap sem eitthvað allt annað. Ef við skoðum það í stóra samhenginu, setjum það jafnvel upp í eilífðina eða bara veru okkar á þessum stað, þá er afskaplega stutt síðan við fórum að nota aukefni í búskap, einhver hjálparefni. Þannig að í sjálfu sér er það ekki langur tími.
Lengi vel settu menn það fyrir sig að hér væri erfitt að stunda lífrænan búskap vegna aðstæðna í náttúrunni, en búið er að afsanna það. Það er hægt að fara lengra. En það er líka að verða vitundarvakning og breyting hjá bændum. Þeir þurfa sjálfir að taka ákvarðanir um það. En við erum mjög nálægt því á mörgum sviðum, eins og í sauðfjárræktinni. Það var mjög framsýnt fólk sem tók þá ákvörðun fyrir mörgum árum að banna lyf í fóður. Það er fjársjóður sem við búum yfir og við eigum að þakka því fólki fyrir sem kom því á. Það er ómetanlegt fyrir okkur.
Þar sem ég þekki til sláturhúsa veit ég ekki annað en að sé farið eftir ströngum gæðakröfum og reglum og kannast ekki við að það komi sex læri af einni skepnu. Ef það hefur gerst held ég að um sé að ræða einhver önnur mál og við séum komin inn á brautir kraftaverka og undra ef sú er raunin. Þá eru menn örugglega ekki í lífrænum búskap ef svoleiðis afurðir eru farnar að koma af skepnunum. Þá er eitthvað annað í gangi sem ég þekki ekki íslenska bændur af að sinna.