vistvæn opinber innkaup á matvöru.
Forseti. Ég var náttúrlega vísa í að þá væri verið að blanda skepnunum saman og bóndinn fengi einhverjar afurðir til baka sem hann kannaðist ekki við. Það er mjög erfitt ef maður er í lífrænum búskap og vill geta selt vöruna sína og að neytandinn viti að það sé lífrænt sem hann kaupir.
En ég velti fyrir mér hvort það væri skynsamlegt að leyfa bændum aftur að slátra sjálfir, hvort nokkur þörf sé á því að hafa þetta miðlægt, að öllu sé slátrað á sama stað, og hvort í raun og veru sé hægt að flokka sem það undir dýravelferð að gera það á þann hátt, þegar þessi dýr eru flutt langar vegalengdir, sem vekur hjá þeim hræðslu og óöryggi, til að slátra þeim. Ég velti því fyrir mér varðandi dýravelferð hvort hv. þingmaður telji vænlegt að við skoðum þá möguleika aftur að fara að leyfa heimaslátrun í meira mæli.
Ég veit að mögulega eru einhver frávik, ég þekki það ekki nægilega vel. Þess vegna spyr ég í von um að þingmaðurinn gæti frætt mig eða upplýst mig um hvernig það virkar.
Varðandi lífrænt þá er það rétt, og ég tek alveg undir það, að við gerum þetta ótrúlega vel hér á Íslandi, sérstaklega ef við horfum á mörg önnur lönd í heiminum og hvað þau nota mikið af eiturefnum í búskap; hormóna og fúkkalyf og allt það. En við notum samt sem áður áburð og ég held að við gætum gert betur. Mig langar að átta mig á því hvað við þurfum að gera. Ég tel að best sé að gera þetta með jákvæðum hvötum. Hvernig getum við hvatt bændur og skapað hér aðstæður sem gera það að verkum að þeir geti farið í meiri nýsköpun og mögulega farið út í lífrænan búskap án þess að áhættan sé svo mikil eins og hún er akkúrat núna?