vistvæn opinber innkaup á matvöru.
Forseti. Ég gat nú ekki staðist það, verandi hér með lífrænan bónda, [Hlátur í þingsal.] að spyrja hvernig hv. þingmaður telur núverandi fyrirkomulag með búvörusamninga ganga fyrir lífrænan búskap. Eru nægilega miklir hvatar til staðar? Er þetta nægilega mikil aðstoð til lífrænna bænda? Hvernig fáum við þessar vörur meira inn? Því það er frábært þetta Beint frá býli, Beint frá bónda, en það bara er ekki aðgengilegt fyrir alla. Hvernig fáum við meiri vitundarvakningu um þetta þannig að þetta komi inn í verslanirnar okkar? Sem manneskja sem verslar lífrænt get ég sagt að það er ótrúlega lítið úrval og lítill aðgangur að lífrænum matvörum í stórum verslunum. Ég þarf oft að fara í margar búðir til að finna allt sem mig vantar.
Mig langar til að spyrja líka út af því að talað var um að nánast öll dýr væru grasbítar. Það eru væntanlega ekki svín og kjúklingar en er það ekki líka erfðabreytt korn og soja sem nautin fá? Nú þekki ég þetta ekki. Þess vegna spyr ég: Hver er munurinn á lífrænu og ólífrænu? Er það bara áburðurinn? Er það eitthvað fleira sem gerir að verkum að varan er stimpluð lífræn?