vistvæn opinber innkaup á matvöru.
Virðulegur forseti. Við ræðum þingsályktunartillögu um vistvæn opinber innkaup á matvöru. Ég þakka bæði framsögumanni og öðrum sem hafa tekið þátt í umræðunni, mér finnst hún mjög áhugaverð.
Mig langar reyndar líka að þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir ræðu hans. Hann hefur mikla þekkingu á þeim málum og ávallt gaman að hlusta á hann. Það er líka áhugavert að sjá hvernig kynjasamsetningin er í salnum undir umræðunni, í ljósi þess að konur eru í miklum minni hluta á þingi virðist áhugasviðið augljóslega liggja hér.
Einn hv. þingmaður höfuðborgarsvæðisins sagði við mig í hliðarsal í gær: Hvað er þetta, af hverju er Alþingi alltaf að ræða landbúnaðarmál? Ég held að mikilvægt sé að við þingmenn höfuðborgarsvæðisins tökum líka þátt í þeirri umræðu en hún er oft hávær á alla kanta á þinginu og kannski miklu meira en almennt gengur og gerist hjá almenningi. Ég held að hann sé ekkert mjög mikið að velta fyrir sér landbúnaðarmálum.
Mér finnst þessi þingsályktunartillaga mjög athyglisverð og með mjög góð markmið innan borðs. Ég vil þó taka undir það sjónarmið að mér finnst full ástæða til að huga að umhverfissjónarmiðum almennt við opinber innkaup. Reyndar er það svo að ég held að líka þurfi að skoða lög um opinber innkaup út frá öðru sjónarhorni. Við þurfum að vera mjög vakandi yfir þessari löggjöf. Ég segi það ekki síst vegna þess að ég hef setið í stjórn opinbers fyrirtækis sem hefur trekk í trekk fengið kærur á sig og þurft að verja mjög miklum fjármunum í lögfræðiaðstoð við slíkt. Það er svolítið gegnumgangandi. Þá velti ég fyrir mér hvort vandamálið liggi löggjafarinnar megin eða hvort fólk eigi erfitt með að fóta sig innan rammans.
En hvað varðar þetta mál, þegar horft er til umhverfissjónarmiða og dýraverndar við opinber innkaup á matvöru, er mjög áhugavert að það verði skoðað. Í rauninni aðhyllist ég það að opinberar stofnanir geti sett sér slík markmið og uppfyllt lögin sem þeim ber að uppfylla, lög um opinber innkaup.
Auðvitað þarf alltaf að horfa líka á hagkvæmnina, það er nauðsynlegt að hafa það sjónarmið, en lögin einblína mjög á að hagkvæmasti kosturinn eigi ávallt að ráða. Það hefur til að mynda verið erfitt þegar sveitarfélög og opinberir aðilar hafa verið að bjóða út verklegar framkvæmdir að gera ákveðna kröfu um sögu eða þekkingu verktaka. Þeim aðilum er svolítið uppálagt að taka alltaf lægsta tilboðinu. Um aðrar leiðir, eins og samningskaupaaðferð og annað, hefur ekki náðst nógu góð þátttaka. Einhvern veginn höfum við ekki náð að fóta okkur nægjanlega í þeim efnum, ég held að alla vega mörgum Norðurlöndum hafi tekist að gera mun betur.
Herra forseti. Ég velti fyrir mér hvort það sé hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem tekur málið fyrir.
(Forseti (ÞorS): Það er fjárlaganefnd.)
Það er fjárlaganefnd sem fær þetta mál, já, þetta eru opinber innkaup. Mig langar að beina því til hv. nefndarinnar að velta því aðeins fyrir sér hvort þörf sé á að skoða lögin út frá fleiri þáttum. En þetta er vissulega einn þátturinn sem varðar opinber innkaup á matvöru.
Mig langaði aðeins að taka undir þau sjónarmið sem hafa komið fram þegar kemur að lífrænni ræktun, ég er áhugamanneskja um slíkt sem neytandi. Ég fór aðeins að leita á veraldarvefnum og fann ekki neitt nýrra þegar ég sló inn „lífrænt lambakjöt“. Ég hef nefnilega heyrt því svolítið fleygt að mjög erfitt sé að vera með lífrænt lambakjöt á Íslandi, kannski fyrst og fremst af því við erum að tala um grasbíta og flestir eru vanir því að reka þá upp á heiði og leyfa þeim að njóta íslenskrar náttúru, njóta og nýta, og þar af leiðandi, ef þú ætlar að vera með lífræna ræktun, þarftu að hafa mjög afmarkað svæði sem kindunum er beitt á.
En ég fann frétt í hinu ágæta riti Bændablaðinu. Hún er reyndar frá árinu 2016, frá því í nóvember það ár, samt ekkert það gömul. En það sló mig að þar voru tölur um það að á árunum 2012–2016 hefðu tíu framleiðendur sótt um lífræna vottun og 15 vinnsluaðilar. Á sama tíma voru 14 aðilar sem skiluðu inn leyfinu sínu eða vottuninni sinni. Það er verið að fjalla um ákveðna stöðnun í greininni, um stöðnun í lífrænum landbúnaði á Íslandi.
Ég veit að við höfum tekið á því í samningi við bændur og við erum með sérstakan hvata hvað þetta varðar. Ég veit ekki hvaða árangri það skilar en mér finnst mjög mikilvægt að við horfum til þeirra þátta. Mér finnst einsýnt að á þessari fallegu eyju okkar úti í miðju Atlantshafi, sem gerir út á náttúru og hreinleika, ættum við að standa sterkum fótum og geta verið til fyrirmyndar fyrir önnur ríki.
Ég get ekki látið hjá líða að koma inn á umræðuna um matvöruverslanir. Þeim hefur fækkað og þær hafa stækkað og því fylgir mikið umbúðamagn. Allra verst finnst mér að fara í búðina og sjá plasti pakkað utan um plast. Ég veit að sous-vide, afsakið, virðulegur forseti, ég veit ekki til þess að það sé eitthvert íslenskt orð til yfir það, sem tröllreið öllu fyrir síðustu jól og fólk fór að hægelda kjötið sitt í plasti. Reyndar koma fínustu steikur út úr því og allt í góðu með það, en það er alveg rosalegt að horfa á plastumbúðamagnið í verslunum í dag.
Ég myndi svo gjarnan vilja að við gætum verið með hvata til verslunareigenda svo þeir tækju svolítið við sér í þeim efnum. Það síðasta er að þeir eru hætta með plastpokana, burðarpokana. Það hefur verið mikil umræða um það í samfélaginu og sumir segja að þarna séum við að byrja á algerlega á röngum enda. Ég ætla ekki hafa mikla skoðun á því þótt ég hvetji fólk almennt til að nota margnota poka og vera ekki að setja miklar umbúðir ofan í plastpoka því að oft er hægt að halda á umbúðunum heim. En þá held ég að ekki þurfi síður að horfa til þess umbúðafargans sem er í verslunum. Það hlýtur samt að gilda þegar opinberir aðilar versla inn, þetta er allt einhvern veginn fullt af umbúðum. Þrátt fyrir að við viljum tryggja matvælaöryggi og gæði matvæla og verðum að huga að geymsluþoli og þeim þáttum, sem skipta auðvitað miklu máli, held ég að við hljótum að geta náð betri árangri hvað það varðar.
Það er alla vega kosturinn við ákveðna vitundarvakningu sem hefur orðið um bæði lífræn matvæli og ákveðin umhverfissjónarmið. Það er kannski ekki alltaf allt fengið með lífrænu vottuninni en gott er að vita til þess að horft sé til vistvænni lausna og kolefnissporsins. Þá hafa sprottið upp verslanir sem eru svolítið líkari kaupmanninum á horninu og eins þegar bændur eru að selja beint frá býli. Ég hef stundum tekið dæmi af því að í minni sveit, sem er nú ekki sveit lengur, Mosfellsbæ, en þar er hægt að fara og versla t.d. kalkúninn og kjúklinginn og eggin beint frá bónda. Það er til mikilla bóta.
En þróunin hefur samt verið í þá átt að verslanirnar eru stórar og miklar. Það er þó athyglisvert að horfa til þess að það virðist vera einhver smá breyting hvað þetta varðar. Stóru verslunarkeðjurnar eru farnar að horfa á smærri verslanir líka, sérstaklega í tengslum við þéttingu byggðar. Þeim er ljóst að þær hafa ekki mikið rými til að athafna sig inni í þéttri byggð. Það er eitthvað að koma til baka þótt ég haldi að við förum aldrei í gamla horfið aftur, að það sé alltaf bara kaupmaðurinn á horninu. Enn þá munu örugglega flestar fjölskyldur notfæra sér það að fara í stórmarkaði þar sem hagkvæmni getur verið meiri. En þá kostar það auðvitað að fólk þarf oft að fara akandi á einkabíl og hlaða á.
Ég veit að ég fór um víðan völl. Ég leyfði mér það í ljósi þess að margir aðrir höfðu gert það, notað tækifærið til að ræða almennt um umhverfissjónarmið og matvælaframleiðslu. Ég fagna þessari þingsályktunartillögu og hvet til þess að sem flestir sýni henni áhuga á og vona að við fáum mikið af umsögnum um málið. Ég held að mjög mikilvægt sé að vekja upp almenna umræðu í samfélaginu um umhverfissjónarmið og dýravelferð, bæði við opinber innkaup og innkaup einkaaðila.