149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

húsnæðisbætur.

140. mál
[16:04]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að benda sérstaklega á að mikilvægt sé að við notumst við mannsæmandi íveruými, viðurkennt húsnæði, svo lengi sem við getum kannski hætt með sérbaðherbergi, sér- þetta og sér- hitt. Ég tek heils hugar undir það.

Svo er það er auðvitað þróun sem við verðum með öllu móti að stoppa að fólk búi í ósamþykktu atvinnuhúsnæði, en það er af svo mörgum ástæðum. Slíkt húsnæði getur oft hreinlega verið mannskemmandi ef það er ekki næg birta og annað þess háttar en ekki síst út frá brunavörnum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur ítrekað farið yfir svæðin og bent sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu á þetta og þau með einhverjum hætti reynt að berjast fyrir því. Ég þekki sjálf dæmi þess hjá litlu sveitarfélagi að byggingarfulltrúi segir: Ég skil ekki af hverju við erum að greiða bætur til aðila sem eru í þessu húsnæði. Það uppfyllir ekki skilyrði þess að vera sæmilegt íbúðarhúsnæði. Þá koma á móti einhver félagsleg sjónarmið hinum megin því að þetta er kannski það eina sem er í boði og annað.

Það er vissulega vandrötuð leið hvað þetta varðar og þess vegna skil ég mjög vel að við verðum að hafa einhverja viðurkenningu á því að húsnæði sé íbúðarhæft. Ég held að við hv. þingmaður séum hins vegar sammála um ekki þurfi alltaf þessi sérákvæði.

Hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta með nýja kynslóð eða breytta tíma og ég held einmitt að það sé svolítið ný kynslóð sem gerir öðruvísi kröfur og vill kannski binda minna af fjármunum í steypunni og nota fjármunina meira í annað. Á sama tíma held ég að við verðum að tryggja fjölbreytileika og ákveðið valfrelsi hvað það varðar þannig að mismunandi lausnir bjóðist á húsnæðismarkaðnum.