endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessi svör. Það er kannski fyrst og fremst það að mér kom svo á óvart að hv. þingmaður sagðist í rauninni styðja bann á hvalveiðum óháð því sem lagt er til í þingsályktunartillögunni, þ.e. að gera einhvers konar úttekt á áhrifunum. Mér finnst ég þekkja hv. þingmann frekar að því að vilja einmitt að öll gögn liggi fyrir í málinu og áhrifin frekar en einhvers konar tilfinningarök sem mér finnst þetta svolítið byggja á. Þá má líka velta fyrir sér stóru myndinni út frá loftslagsmálum en hv. þingmaður kom inn á landbúnaðar- og loftslagsmál í ræðu sinni. Er umhverfisvænna að rækta prótein, tökum sem dæmi laxeldi, heldur en að veiða villtar dýrategundir, að því gefnu auðvitað að þær séu ekki í útrýmingarhættu og um sjálfbærar veiðar sé að ræða?
Ég segi fyrir mitt leyti og spyr kannski hv. þingmann: Er ekki mikilvægt í svona málum að líta alltaf á stóru myndina? Getum við látið það eftir okkur að líta til tilfinningaraka gagnvart einstökum þætti í svona málum?
Ég tek heils hugar undir það sem kom fram í máli hv. þingmanns. Ég virði mjög það fólk sem hefur ákveðið að sleppa alveg kjöti eða dýrum yfir höfuð í sinni fæðu og nærast á einhverju öðru, annaðhvort á forsendum loftslagsmála eða dýraverndunarsjónarmiða. Mér finnst að allir eigi að hafa fullt frelsi til að velja slíkan lífsstíl. En ég er eins og hv. þingmaður líka kjötæta og finnst kjöt almennt mjög gott. Ég ætla samt að taka fram að í þau fáu skipti sem ég hef smakkað hvalkjöt þá hefur mér ekki fundist það neitt sérstaklega gott. Að sama skapi vil ég heldur ekki banna allt sem mér finnst vont bara út af því að mér finnst það vont.
Þannig að ég spyr aftur hv. þingmann: Er ekki mikilvægt að horfa alltaf á heildarmyndina þegar við ræðum svona hluti? Þarna er náttúrlega verið að tala um matvælaframleiðslu, um fæðu.