149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.

47. mál
[17:38]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um þingsályktunartillögu um endurmat á hvalveiðistefnu Íslands. Ég verð að segja það að mér þykir þessi þingsályktunartillaga stórfurðuleg, alla vega af tveimur ástæðum ef ekki fleiri. Tillagan gengur út á það að fela forsætisráðherra að endurmeta hvalveiðistefnu Íslendinga og greina þjóðhagslegt mikilvægi veiðanna. Ég velti því fyrir mér hvernig hv. þingmönnum datt hreinlega í hug að fela forsætisráðherra það verkefni en ekki viðkomandi fagráðherra, hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ég ætla reyndar að fá að kasta því fram að ég velti fyrir mér hvort ekki sé um að ræða stríðni flutningsmanna, hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, 1. flutningsmanns, og Jóns Steindórs Valdimarssonar, sem flutti þessa þingsályktunartillögu áðan í fjarveru hennar, sérstaklega í ljósi þess að hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson sagði áðan að hann væri eiginlega á móti hvalveiðum, en ekkert brjálæðislega mikið. Þetta virðist því ekki fyrst og fremst snúast um að viðkomandi þingmenn hafi brennandi sterka skoðun á því að stöðva hvalveiðar, heldur að hv. þingmenn vilji aðeins notfæra sér það að hæstv. forsætisráðherra hefur oft og tíðum tjáð sig um hvalveiðar og sá flokkur sem hún stendur fyrir hefur almennt ályktað sem svo að hann sé á móti hvalveiðum.

Það vill samt engu að síður þannig til að samkvæmt okkar forsetaúrskurði, hvaða ráðherrar hafa með hvað gera, þá er þessi málaflokkur hreinlega undir öðrum ráðherra. Ég átta mig alveg á því að forsætisráðherra er verkstjóri í ríkisstjórninni og getur komið að ýmsum málum. Þetta er nú ein ástæðan fyrir því að ég furða mig mjög á þessari þingsályktunartillögu. Hin ástæðan er sú að flutningsmennirnir vilja að við matið verði horft til hagsmuna atvinnugreina eins og ferðaþjónustu og sjávarútvegs og tekið tillit til vísindarannsókna, dýraverndarsjónarmiða og hagsmuna sveitarfélaga. Öllu þessu er ég svo hjartanlega sammála, en ég hygg að hv. þingmönnum sé líka vel ljóst að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur einmitt falið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að meta þjóðhagsleg áhrif hvalveiða og áhrif þeirra á aðrar atvinnugreinar.

Sú stofnun skilaði skýrslu árið 2010 og þá kom skýrt fram að það teldist þjóðhagslega hagkvæmt að halda hvalveiðum áfram. En nú, átta árum síðar, þykir hæstv. ráðherra full ástæða til þess að þær niðurstöður verði endurmetnar miðað við þróun síðustu ára. Ég hygg að þessari skýrslu hafi átt að skila nú á haustdögum, þannig að við hljótum að eiga von á því að fá þessa skýrslu og þetta mat mjög fljótlega. Þá getum við tekið, að mínu viti, málefnalegar umræður byggðar á rökum sem ég geri ráð fyrir að Hagfræðistofnun muni safna og áhrifum á margar atvinnugreinar, m.a. ferðaþjónustuna. Ég lýsi mig fullkomlega tilbúna í þá umræðu.

Ég er hvorki á móti hvalveiðum né hyggst ég berjast sérstaklega fyrir hvalveiðum, en mér finnst mjög mikilvægt að sjálfstæð þjóð hafi fullan rétt á því að nýta náttúruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti. Ég myndi ekki vilja víkja frá þeirri mikilvægu staðreynd nema augljóst væri að það hefði áhrif á aðrar mjög mikilvægar atvinnugreinar. Nú komu flutningsmenn þingsályktunartillögunnar ágætlega inn á það að lagðar voru fram fyrirspurnir í þinginu, m.a. til hæstv. iðnaðar-, nýsköpunar- og ferðamálaráðherra sem kannast ekki við að slíkt hafi áhrif á ferðaþjónustuna. Það hefur alla vega ekki komið fram enn.

Virðulegi forseti. Mig langar líka að setja þetta í aðeins annað samhengi. Nú þekki ég nokkuð vel til vestnorrænu landanna, ég sit í Vestnorræna ráðinu. Ágætir nágrannar okkar, Grænlendingar, stunda selveiðar og hafa gert svo lengi sem elstu menn muna, eða frá því byggð hófst á Grænlandi, að því er ég held, hreinlega til að komast af. Ég hygg að mörgu leyti að þetta séu með sjálfbærari veiðum þar sem Grænlendingar borða kjötið, það er mikilvæg fæða. Við skulum ekki ímynda okkur að allir geti orðið grænmetisætur á Grænlandi enda er þar nánast ekkert undirlendi þar sem hægt er að rækta grænmeti eða mjög lítið. Selveiðar eru þeim að sjálfsögðu, alveg eins og veiðar á öðrum villtum dýrum, gríðarlega mikilvægar. En það er ekki bara það að þeir borði kjötið heldur er skinnið mikilvæg afurð í föt og töskur og annað þess háttar. Beinin eru nýtt og úr þeim gera þeir skartgripi og annað sem er ákveðið auðkenni þeirra, og þetta er auðvitað líka mikilvægur hluti af ferðaþjónustunni.

Aftur á móti tókst Evrópusambandinu á tímabili að „rústa“, ég ætla að nota það orð, markaði Grænlendinga fyrir selskinn með ákveðnu banni. Umræðan um bannið gerði það að verkum að Grænlendingar, þessi litla fámenna þjóð sem býr við mjög erfið skilyrði, áttu virkilega erfitt með að koma tveimur helstu útflutningsvörum sínum á framfæri á markaði. Evrópusambandið hefur að vísu bakkað með það og til staðar þarf að vera ákveðin vottun fyrir því að um sjálfbærar veiðar sé að ræða. Ég ætla að ítreka það að ég er alls ekki hlynnt því að gengið sé á náttúruauðlindir eða dýrastofna með einhverjum hætti, við þurfum alltaf að huga að sjálfbærri nýtingu. En ég hef bara séð það eigin augum hvað þetta skiptir Grænlendinga miklu máli og hvað þessi umræða hafði mikil áhrif á Grænlendinga. Þó ekki sé nema gagnvart málum af þessu tagi finnst mér mjög mikilvægt að Íslendingar standi í lappirnar fyrir því að fá að nýta sínar náttúruauðlindir og lifandi verur í sjónum að því gefnu að við hugum að sjálfbærum veiðum.

Þá vil ég bara minna á, eins og ég sagði áðan, að ég er mjög spennt fyrir þessari skýrslu Hagfræðistofnunar. Ef niðurstaðan yrði önnur en áður eða ef niðurstaðan yrði sú að við værum að ganga á stofninn með einhverjum hætti mundi ég segja að við ættum að stoppa veiðar eða setja mjög mikil mörk á þær. Nýverið var í Morgunblaðinu frétt sem bar heitið „Viðkvæm en ekki í hættu“. Ég ætla að fá að vitna aðeins í þá frétt, hún er ekki mjög löng, með leyfi forseta:

„Langreyður er ekki lengur flokkuð sem tegund í hættu á heimslista Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna. Tegundin er nú flokkuð sem viðkvæm.

Talið er að fjöldi dýra af tegundinni hafi tvöfaldast frá því á sjöunda áratugnum og eru þau nú talin vera um 100 þúsund í höfum heimsins, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.“

Ég ætla að láta þessu lokið en áhugasamir geta að sjálfsögðu lesið fréttina betur. Ég held að þetta sé grunnatriði. Hvort sem um er að ræða veiðar á hval eða hreindýrum, rjúpu eða lunda eða hvað það kann að vera, eigum við alltaf að hlusta á vísindamennina þegar kemur að því að þeir meti stofninn og hvort veiðar séu sjálfbærar. Við eigum aldrei að ganga þannig um landið okkar eða þær lífverur sem hér lifa að þær séu í hættu. Mér finnst því mikilvægt, eins og ég hygg að íslensk stjórnvöld hafi gert í gegnum tíðina, að tala þessari röddu. Við höfum almennt staðið vörð um rétt okkar til að nýta náttúruauðlindir fyrir Íslendinga. Við höfum líka gert það á vettvangi Vestnorræna ráðsins og höfum tekið að okkur að tala þessari röddu innan Evrópusambandsins, t.d. þegar við hittum fulltrúa þess. Þá hafa hvalveiðar Íslendinga komið til tals, en þó meira selveiðar Grænlendinga og grindhvalaveiðar Færeyinga. Ég sakna þess að hv. þm. Þorsteinn Víglundsson sé ekki hér í salnum því að ég sé að hann er einn af flutningsmönnunum. Ég veit að hv. þingmaður fór einmitt til Færeyja og upplifði það þegar þeir smala grindhvölunum þar inn. Ég man að hann talaði um að það hefði verið mjög sérstök upplifun og það hefði kannski svolítið breytt afstöðu hans til málsins að sjá þá samfélagslegu hefð sem var í kringum það. Við sjáum myndir af þessu og okkur finnst þetta hræðilegt. Þarna flæðir blóð út um allt en þetta er samfélagsleg hefð og hvölunum er skipt á milli heimila, allir fá sinn hlut. Sérstaklega er hugað að þeim sem fátækari eru svo að þeir fái örugglega hluta af fengnum. Að mörgu leyti er þetta fallegt út frá félagslegu sjónarhorni.

Ég gæti svo sem talað lengi um þetta mál, en ég ítreka enn og aftur að ég vil bíða niðurstöðu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Ég vil vita afstöðu vísindamanna til stofnanna og hvort talið sé að það séu önnur atriði (Forseti hringir.) sem við þurfum að huga að. Þá er ég tilbúin í umræðuna, frekar en kannski beint út frá tilfinningalegum rökum um það hvað okkur kann að finnast um einstakar dýrategundir.