endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.
Virðulegi forseti. Ég er ekki með eiginlegar spurningar en kannski mótrök við ræðu hv. þingmanns sem ég þó kann að meta. Þingmaðurinn er málefnalegur eins og ávallt. Í fyrsta lagi eru það selveiðar Grænlendinga. Ég skil það mætavel, eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan, að góðar ástæður geta verið fyrir því að gera hluti sem manni annars er illa við, þess vegna t.d. byggjum við fangelsi. Ég er ekkert hlynntur fangelsum en ég veit að það þarf að byggja þau, þau eru eina úrræðið sem okkur hefur dottið í hug hingað til til þess að takast á við ákveðna hegðun sumra einstaklinga. Ef það er þannig að gjörvallur efnahagur þjóðríkis eða lifibrauð hvíli á því að drepa sel þá gott og vel. En mér finnst svo bersýnilegt að það er ekki tilfellið þegar kemur að hvalveiðum á Íslandi. Það er bersýnilegt að mataröryggi okkar kemur þessu ekkert við og sömuleiðis er sala á hvalkjöti hverfandi hluti af hagkerfi okkar. Mér finnst það því mjög augljóslega ekki gilda hér, en get alveg samþykkt að önnur rök gætu auðvitað réttlætt það bara eins og alltaf.
Mig langaði líka að nefna það sem hv. þingmaður sagði um að sjálfstæð þjóð hefði fullan rétt á að nýta auðlindir sínar. Ég hef ekki rekist á nokkurn mann sem mótmælir því. Þegar ég segi að mér finnist að við eigum að banna hvalveiðar er ég að stinga upp á því sem íslenskur þingmaður. Ég er að stinga upp á því að Alþingi geri það, ekki að ákvörðunin verði færð úr landi heldur að við tökum ákvörðun með hliðsjón af væntingum annarra. Það er eðlilegur hluti af hegðun. Það eru alls konar hlutir sem ég ræð í mínu eigin fari, en ég ræð ekki hvernig aðrir bregðast við. Ég ræð ekki hvað öðrum finnst um það. Auðvitað mótar maður hegðun sína í samræmi við væntingar annarra. Það er fullkomlega eðlilegt milli þjóðríkja sem einstaklinga.
Ég er með fleiri punkta, en kannski við byrjum bara á þessum tveimur fyrst tíminn er svona knappur.