149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.

47. mál
[18:00]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hygg að við þurfum að horfa á selveiðar Grænlendinga út af því að við erum að ræða þær sérstaklega sem mikilvægan hluta af atvinnusköpun þeirra og atvinnustefnu. Ég vil síður líkja þeim við fangelsi þó að ég viti að hv. þingmaður hafi kannski ekki beint verið að meina það. En hv. þingmaður kom inn á það að hvalveiðar hefðu ekkert með mataröryggi okkar að gera og ég get verið fyllilega sammála því. Ég efast um að Íslendingar borði mjög mikinn hval. Meiri hlutinn af þessu fer til útflutnings.

En eins og ég kom inn á hér áðan, í andsvari við hv. þingmann, finnst mér svo mikilvægt, þegar við ræðum þessa þætti, að horfa á stóru myndina. Nú ætla ég ekki að segja að ég sé sérfræðingur í því hvert kolefnisspor hvalveiða er, en ég þekki þó alla vega til þess að hvalveiðifyrirtækin hafa farið að nota selspik, eða fituna, til að drýgja olíu á skipin sín, sem ég held að sé mjög umhverfisvænt og ætti að fækka kolefnissporum. Þetta eru auðvitað gríðarlega stórar skepnur og gefa þar af leiðandi mjög mikið kjöt og þegar við ræktum matvæli, sem hafa mikið verið til umræðu hér og úti í samfélaginu, verðum við líka að átta okkur á því að okkur er stöðugt að fjölga og við þurfum að brauðfæða þennan heim. Þá velti ég fyrir mér: Hvar eigum við að setja mörkin? Bíddu, af hverju er þessi matvælaframleiðsla verri en hin? Ef við erum að raða þessu í slíka flokka er þá ekki mikilvægt að við höfum heildarmyndina, að við getum lagt mat á það hver eru kolefnissporin við þetta versus eitthvað annað?

Þá kemur að þessu, að við eigum að ákveða hvernig við nýtum náttúruauðlindir okkar. Ég ber virðingu fyrir sjónarmiðum þingmannsins ef hann vill banna hvalveiðar. En mér finnst að slíkar skoðanir ættu kannski að byggja meira á faglegum rökum. Það var bara mín afstaða. Og ég vona að hv. þingmaður virði það við mig að það sé afstaða mín. Ég kem inn á hitt í næsta andsvari.