endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið. Ég ætla ekki að svara því sem hv. þingmaður fór út í, bara þakka henni fyrir samskiptin, við erum að skiptast á punktum og rökum. Hv. þingmaður nefndi að henni þætti það skrýtið að beina þessu til forsætisráðherra. Ég vil bara bendi á að það er mjög einföld breyting; ef umhverfis- og samgöngunefnd kemst að þeirri niðurstöðu að málið eigi frekar heima hjá öðrum ráðherra þá er ekkert mál að breyta því. Mér finnst það alla vega ekki vera stór punktur, ágæt athugasemd og sjálfsagt alveg rétt, ég þekki það hreinlega ekki að óathuguðu máli.
En ég vil halda því til haga að þótt ég sé sjálfur hlynntur banni á hvalveiðum þá hef ég ekki enn lagt fram þingmál þess efnis. Ég tel réttu leiðina vera þá að fara þessa leið, að fá upplýsingarnar fram. Þótt ég þurfi ekki upplýsingar til þess að móta þessa tilteknu ákvörðun enn koma þær auðvitað að gagni, fyrir utan það að ég ber ómælda virðingu fyrir því að það þurfi gögn og sannfæringu, að það þurfi að hafa fyrir því að sannfæra annað fólk. Mér finnst það sjálfsagt. Eins og ég segi hef ég ekki lagt fram mál til þess að banna hvalveiðar og myndi ekki gera það án þess að fara í þessa vinnu fyrst vegna þess að ég virði það einmitt við hv. þingmann, aðra þingmenn og alla aðra að við nálguðumst málið út frá misjöfnum forsendum.
Ef hv. þingmaður þarf þau gögn þá er það virðingarvert og fínt — þau atriði eru í skoðun, segir hv. þingmaður. Ég vildi hins vegar nefna það sérstaklega að ég legg ekki þessar forsendur til grundvallar afstöðu minni til hvalveiða eins og er. Eins og alltaf þegar inn koma gögn gætu þau komið mér stórlega á óvart. Kannski kemur í ljós að hvalveiðar séu ofboðslega mikilvægar vegna loftslagsbreytinga eða eitthvað, þá skipti ég bara um skoðun eins og hef gert áður; það hefur reyndar reynst merkilega lítið óvinsælt.