endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.
Virðulegi forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni einmitt sérstaklega fyrir þessi orð hans um mikilvægi þess að þegar við tökum slíka afstöðu hér á þingi þá liggi öll gögn fyrir. Ég held að við hv. þingmaður séum algjörlega sammála um það. Ef við værum hér að ræða bann við hvalveiðum þyrftum við mikil og góð gögn þar að lútandi. En reyndin er sú að við erum ekki hér að ræða bann við hvalveiðum heldur erum við að ræða þessa þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að endurmeta hvalveiðistefnu Íslendinga.
Bara svo að ég komi aðeins inn á það að hv. þingmaður var að spyrja mig út í þetta varðandi forsætisráðherra: Viðkomandi þingsályktunartillaga mun nú eftir þessa umræðu væntanlega fara til umræðu í atvinnuveganefnd. (Gripið fram í.) — Ég held að forseti hafi staðfest við mig áðan að hún fer til atvinnuveganefndar. Eru það ekki enn frekari rök fyrir því, sem ég var að segja áðan, að það væri hálfankannalegt að fela forsætisráðherra þetta verk? Það ætti frekar að fela ráðherra í atvinnuvegaráðuneytinu þetta verk. Auk þess er þessi vinna í gangi, eins og ég hef margoft sagt. Við áttum okkur á því að við þurfum að endurmeta þetta vegna þess að leyfi til hvalveiða rennur út um næstu áramót og þá þarf að taka afstöðu til næsta tímabils, hvernig við ætlum að nálgast það.
Við hv. þingmaður áttum orðastað um það á hverju þetta byggði og væntingar annarra. Ég hef staðið fyrir því að við eigum að hafa sjálfstæða stefnu og við eigum að hafa val um að nýta og njóta okkar náttúru svo lengi sem það sé sjálfbært. Hv. þingmaður kom inn á það að hann geti haft þessa afstöðu sem íslenskur þingmaður, en það byggir samt á annarri afstöðu sem er þarna úti. Það er kannski punkturinn sem ég er að reyna að benda á, því að slík afstaða hefur oft byggst á ákveðnum misskilningi eða jafnvel röngum upplýsingum. Þannig að mér finnst mjög mikilvægt að við hér inni (Forseti hringir.) fáum réttar upplýsingar upp á borðið. Ef það reynist svo að ekki sé skynsamlegt að halda áfram hvalveiðum þá tökum við (Forseti hringir.) slíka ákvörðun. Ef það reynist aftur á móti skynsamlegt að halda áfram hvalveiðum þá förum við út í heim og færum rök fyrir þeirri afstöðu okkar.