endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.
Virðulegur forseti. Sú tillaga sem hér liggur fyrir er í sjálfu sér hin ágætasta tillaga. Hún kom fram í fyrra, ef ég man rétt, a.m.k. hefur hún komið fram áður og ég skildi efni hennar betur þá. Ég velti fyrir mér þegar ég sá hana núna hvort það hefði gleymst að uppfæra hana í ljósi þeirrar staðreyndar að það er þegar verið að vinna hluta af því sem hér er farið fram á. Látum það vera, stjórnarandstaða þarf að leggja fram sín mál og merkja sér þau og það er bara eðli þingsins. Sjálfur hef ég tekið þátt í því og mun gera í framtíðinni. Ég ætla ekki að fara mjög djúpt í efni akkúrat þessarar tillögu.
Mín persónulega skoðun er samt sú, þegar ég hef hlustað á marga flutningsmenn tillögunnar, að ef ég hefði verið í þeirra hópi hefði ég einfaldlega lagt fram tillögu um bann við hvalveiðum. Mér finnst pínulítið að löggjafarvaldið sé að færa framkvæmdarvaldinu of mikið vald. Ef meiri hluti Alþingis telur að það eigi að banna hvalveiðar á meiri hluti Alþingis bara að samþykkja um það stefnu.
Látum það samt vera, þetta eru allt algjör smáatriði og ekki sögð í neinum skensisstíl heldur er þetta eingöngu mín afstaða til þessa máls. Ég er almennt mjög hlynntur því að Alþingi fjalli meira um að safna saman upplýsingum og taka upplýstar ákvarðanir þannig að ég er jákvæður gagnvart öllum tillögum í þá átt.
Hvað varðar nákvæmlega þessa tillögu ætla ég ekki að lýsa yfir afstöðu til stuðnings eða andstöðu að öðru leyti en því sem ég hef þegar sagt.
Mig langar einmitt að ræða aðeins um hvalveiðar. Eðli málsins samkvæmt hefur umræðan aðeins þróast í að snúast um þær. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að það er langt síðan ég hef orðið vitni að jafn innihaldsríkri og góðri umræðu og ég hef fylgst með í þessu máli. Hér erum við að ræða, að mér þykir mjög fordómalaust, skoðanir okkar á hvalveiðum, hefðum og líka hvaða sess og mikilvægi hefðir eigi að hafa, sjálfsákvörðunarrétt o.s.frv. Ég ætla aðeins að leyfa mér hér í lok dags, virðulegur forseti, að stinga mér út í þá laug eða jafnvel hefja mig aðeins á loft. Það þykir mér ekki leiðinlegt að gera.
Ég hef í sjálfu sér ekki sérstaka skoðun á því fyrirbæri að veiða hval umfram það að veiða önnur dýr. Ég hygg að að einhverju leyti hafi svipuð viðhorf komið fram í máli hv. þm. Jóns Steindórs Valdimarssonar áðan. Ég vona að ég sé ekki að rangtúlka það neitt. Til að hætta mér ekki út í þá sálma að ég gæti gert það ætla ég að tala hér beint aftur um sjálfan mig, enda þykir mér það skemmtilegast.
Ég hef ekki þá skoðun að maðurinn sé herra náttúrunnar heldur að maðurinn sé hluti af náttúrunni og að það sé í eðli náttúrunnar að dýr lifi hvert á öðru. Þau eru þannig hönnuð af einhverjum eða hafa þróast. Maðurinn er þar engin undantekning. Hins vegar ber ég mikla virðingu fyrir fólki sem hefur aðra skoðun, sem hefur þá skoðun að við eigum yfir höfuð ekki að drepa dýr, hvort sem það er á umhverfislegum forsendum, sem sumir hafa, siðferðislegum forsendum eða heilsufarslegum forsendum sem ég hef líka heyrt nefndar. Ég ber mikla virðingu fyrir því og hver og einn á að finna hjá sér sína ástæðu til þess.
Ég er hins vegar þannig gerður að mér finnst eðlilegt að við veiðum okkur til matar. Ég sat með mörgum hv. þingmönnum og starfsmönnum Alþingis í hádeginu og þar borðuðum við kjöt og gengum vel að mat okkar þar þannig að fyrir mér er dýr dýr. Ég er ekki hrifinn af dýrarasisma, að eitt dýr sé talið æðra öðrum dýrum, að af því að okkur þyki eitthvert dýr gáfað eða göfugt megi ekki drepa það. Í því felst að heimsk og ógöfug dýr megi þá drepa og það er hugmyndafræði sem mér hugnast ekki.
Hins vegar er ég mjög tilbúinn að samþykkja tilfinningarök sem voru nokkur nefnd áðan. Tilfinningarökum beitum við mjög oft og meira að segja hörðustu stuðningsmenn hvalveiða. Ég geng ekki svo langt að kalla þá hvalveiðisinna þótt ég sé vissulega sammála því að þeir séu til, en ég hef ekki enn hitt einn úr hópi hörðustu stuðningsmanna hvalveiða sem ekki beitir tilfinningarökum í einhverjum aðstæðum þegar kemur að einhverjum dýrum. Ansi stór hluti Íslendinga vill ekki lóuveiðar. Við viljum ekki veiða lóuna en það er í lagi að veiða rjúpuna. Er það Jónas Hallgrímsson og rómantíkin eða hver er ástæðan fyrir því að við borðum ekki lóu eins og Frakkar? Ég veit það ekki. Það eru tilfinningarök fyrir mörgum. Við borðum ekki hunda, það eru ekkert nema tilfinningarök heldur. Það er engin ástæða fyrir því að við ættum ekki að borða hund eins og kálf. Við höfum bara ákveðið, tilfinninga okkar vegna, að vega og meta hund og kálf ólíkt.
Ég gef ekkert fyrir þá sem vilja hvalveiðar og gera lítið úr tilfinningarökum andstæðinga hvalveiða. Ég blæs á það.
Ég talaði hins vegar um það áðan að það væri mín skoðun að maðurinn drepi dýr. Dýr drepa dýr og maðurinn er dýr í mínum huga. Hins vegar aðhyllist ég sjálfbærar veiðar og sjálfbæra nýtingu, ræktun eða hvað við köllum það, þegar við tölum um búsmala. Þar velti ég nefnilega fyrir mér hvalveiðum Íslendinga. Mér finnst við oft gleyma því í umræðunni, þrátt fyrir að ég hafi minnt á það mjög reglulega í þessum ræðustól, að undir sjálfbærni eru þrjár stoðir, umhverfisleg, efnahagsleg og samfélagsleg. Ég hygg, miðað við rannsóknir sem ég hef séð, að þau leyfi sem gefin eru út til veiða á hval uppfylli umhverfiskröfur, þ.e. gangi ekki um of á stofninn. Ég hef ekki séð annað. Það má vel vera að það sé til og ég hafi einfaldlega ekki fundið það. Mitt mat, miðað við þær upplýsingar sem ég hef, er að þess sé gætt.
Þá eru hins vegar eftir tvær aðrar stoðir undir sjálfbærni. Uppfylla hvalveiðar efnahagslega þær kröfur sem við gerum í efnahagslegu stoðinni? Ég leyfi mér að draga það í efa. Ég hef ekki séð ársreikninga þess fyrirtækis sem stundar hvalveiðar og ég hef heldur ekki séð þá úttekt sem m.a. er kallað eftir hér á því hver séu heildarefnahagsleg áhrif hvalveiða á íslenskt samfélag. Þess vegna er ég tiltölulega jákvæður fyrir hugmyndunum sem hér liggja að baki.
Þá er eftir þriðja stoðin sem er sú samfélagslega. Þar ætla ég að leyfa mér að fullyrða að hvalveiðar uppfylli ekki kröfur okkar sem eiga að standa undir samfélagslegu stoðinni undir sjálfbærni. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða, og svo getur einhver rekið það ofan í mig eins og oft er gert þegar maður fullyrðir, að það sé mitt mat — sáuð þið hvernig ég baktryggði mig þarna? — að samfélagslega séu hvalveiðar einfaldlega ekki sjálfbærar. Afstaða samfélagsins til hvalveiða, hvort sem það er Íslands eða stærri hluta veraldarinnar sem við öll byggjum, er orðin þannig að hvalveiðar séu ekki lengur sjálfbærar.
Þess vegna er það mín skoðun að hvalveiðar Íslendinga séu ekki sjálfbærar og þess vegna er ég ekki hlynntur hvalveiðum Íslendinga.
Ég vildi koma þessum hugleiðingum mínum inn í þessa umræðu, virðulegur forseti, m.a. af því að mér finnst við þurfa að gera okkur grein fyrir þessu með sjálfbærnina, að hún snúist ekki bara um að telja dýr. Hún snýst um miklu meira. Svo vildi ég líka nefna tilfinningarökin og minna þau sem harðast tala gegn því að einhverjum hugnist ekki að drepa hval vegna tilfinningaraka og biðja þau sem gera lítið úr þeim skoðunum að velta fyrir sér hvað þeim sjálfum finnst um lóuveiðar og máltíð úr litlum púðluhundi.
Berum virðingu fyrir skoðunum hvert annars.