149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

endurmat á hvalveiðistefnu Íslands.

47. mál
[18:41]
Horfa

Flm. (Jón Steindór Valdimarsson) (V):

Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Guðmundi Andra Thorssyni og Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir umræðurnar sem voru, að ég tel, til nokkurrar fyrirmyndar. Smákerskni á köflum en það var allt í lagi, það er nú bara krydd í tilveruna. En efnislega voru þetta áhugaverðar umræður. Menn fóru um víðan völl og við ræddum svolítið á heimspekilegum nótum. Við ræddum líka um siðfræði og siðferði. Við fórum aðeins yfir dýraríkið og hvernig dýrin raðast upp, annaðhvort eftir gáfnafari eða merkilegheitum, eða raðast alls ekkert upp.

Það sem ég tek út úr þessari umræðu, óháð formi tillögunnar sjálfrar eða hvert hún beinist og það allt saman, er að við séum meira og minna öll sammála um að mjög mikilvægt sé að við horfum á þessi mál þannig að við notum, eins og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé benti réttilega á, sjálfbærniprófið. Það eru umhverfismálin, efnahagsmálin og samfélagsmálin eins og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé reifaði ágætlega, vel og skörulega. Þingsályktunartillagan gengur í sjálfu sér út á það að það mat verði framkvæmt og á grundvelli þess verði ákvarðanirnar teknar.

Við kunnum að hafa mismunandi skoðanir á því til hvers sú úttekt muni leiða en ég tel skynsamlegt að láta þetta mat fara fram og taka ákvarðanir á þeim grunni. Það er, held ég líka, akkúrat svarið við þeirri spurningu sem hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé varpaði hér fram í upphafi síns máls: Af hverju ganga flutningsmenn bara ekki hreint til verks og flytja þingsályktunartillögu um að banna hvalveiðar? Það er í sjálfu sér algerlega réttmæt spurning. En hann svaraði sér eiginlega sjálfur með því að minnast á að við ættum að horfa á þetta út frá sjálfbærniviðmiðunum. Menn geta horft á það allt með mismunandi hugarfari, hvort menn eru að tala um dýravernd, siðferði eða náttúruvernd eða viðskiptahagsmuni eða það allt saman. En við höfum þó þessi mælitæki og ég held að það væri mjög gott ef okkur tækist að beita þessu mati þannig að það leiddi til niðurstöðu sem menn geta orðið sæmilega sáttir við.

Við vitum hins vegar, og það er eins og með mjög mörg mál, að á endanum kemur niðurstaða og alltaf er fólk á jöðrunum sem verður aldrei ánægt, alveg sama hvaða niðurstaða fæst. Ég reikna með að það verði í þessu máli eins og ansi mörgum öðrum. En ég vil bara ítreka þakkir mína til hv. þingmanna sem tóku þátt í góðri umræðu.