149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[10:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þetta mun draga úr samþjöppun. Allar þær upplýsingar sem við höfum fengið frá Landssambandi smábátaeigenda og útreikningar frá ráðuneytinu sýna að aukni afslátturinn kemur þeim best sem greiða undir 10 milljónum í veiðigjöld. Þar þarf virkilega að mæta. Þeir sem greiða 100 milljónir í veiðigjöld fá auðvitað alltaf þennan fasta afslátt, sem er að hækka úr rúmum 1.500 þús. kr. að hámarki í dag í 2,4. Þegar við erum búin að tengja veiðigjöldin, þegar þau koma til framkvæmda 2020, þá mun þetta vera það næmt á aflaverðmæti og afkomu hverrar tegundar að það nýtist öllum, hvort sem það er millistærð, lítil eða stærri þá borga menn miðað við aflaverðmæti hverrar tegundar hverju sinni. Það hlýtur að vera það sem við viljum sem þjóð, (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) að fá sanngjarnt (Forseti hringir.) veiðigjald frá öllum, burt séð frá því hvort menn eru stórir, meðalstórir eða litlir. En við tökum tillit til þeirra sem eru minnstir er í greininni sökum stöðu þeirra.