veiðigjald.
Herra forseti. Það er spurt hvað liggi á. Hv. þingmaður og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra ætti að vita það að lög um veiðigjöld renna út um áramót. Það liggur það á að við ætlum að innheimta veiðigjöld á næsta ári til þess að mæta stórauknum útgjöldum í heilbrigðismál, til öryrkja og aldraðra. Ætlar hv. þingmaður að láta lögin renna út og ekki rukka stórútgerðina neitt? (Gripið fram í: Það er mánuður.) Hvað er hv. þingmaður að sýna í þessari umræðu? Bara beint ofan í það að bjóða eigi út aflaheimildir með tillögu sem enginn skilur. Ég efast um að hv. þingmaður skilji tillöguna sjálf. Á allt í einu og án alls undirbúnings að henda óábyrgt fram einhverri tillögu sem gjörbyltir öllu fiskveiðistjórnarkerfinu og valdaframsali ríkisins í fjárlögum? Það er sett rétt sisvona í eina litla breytingartillögu. (Forseti hringir.) Ég held að menn ættu að sofa aðeins betur á tillögunni áður en þeir fara að hrópa hvað hún er frábær. [Hlátur í þingsal.]