149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[10:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Já, við fjölluðum nokkuð um þetta, bæði hvað það þýddi að vera með 10% álag á reiknistofninn í uppsjávargeiranum og að vera með 10% í frádrag frá frystiskipunum, eins og kemur hér fram. Þegar vinnsluhlutinn var tekinn út úr þessu frumvarpi urðu breytingar á aðferðafræðinni og það kom gagnrýni á þetta, hvað þetta þýddi. En við teljum að við höfum fengið mjög greinargóð svör og útskýringar á því. Það væri ekki verið að breyta neinu frá því sem verið hefur, einungis að stilla af þar sem samþætt vinnsla og veiðar væru undir sama aðila eins og hjá uppsjávargeiranum. Þetta þýddi í raun ekki neina hækkun heldur kæmi þetta 10% álag til af því að vinnsluhlutinn í heild sinni er tekinn út úr útreikningum.