149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[10:54]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Í þessu máli sem var tekið með handafli út úr nefndinni í andstöðu við minni hlutann sem óskaði eftir að fá að ræða breytingartillögur meiri hlutans í málinu við þá hagsmunaaðila sem málið varðar. Nei, meiri hluti atvinnuveganefndar raðaði sér inn og tók málið út, þrátt fyrir þá ósk. (Gripið fram í.) Það er víst rétt og það er skjalfest. Fimm menn tóku það út. Það var búið að biðja um og bóka að fá að tala við hagsmunaaðila um breytingartillögur sem meiri hlutinn gerði. Samt var málið tekið út. Þar á undan var málið ekki í samráðsgátt ríkisstjórnarinnar. Það er reynt að fljúga þessu undir radarinn. Og nú raða meirihlutaþingmenn sér í andsvör við formann nefndarinnar (Gripið fram í.) og taka rétt af okkur hinum til að geta átt málefnalega umræðu í þingsal við formann nefndarinnar eftir allt þetta.

Þetta eru ekki góð vinnubrögð.