149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[10:57]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir þetta. Þetta er ótrúlega skringilegt. Í þessu mikilvæga máli er mikilvægt líka að þingheimur og sérstaklega stjórnarandstaðan, eins og viðtekin venja er í stórum og miklum málum, fái að spyrja framsögumann meiri hlutans. Ekki nema menn séu að fela eitthvað, ekki nema menn vilji komast hjá óþægilegum spurningum sem er síðan ekki svarað eins og var áðan í mínu tilviki. Það var ekki neinni spurningu svarað.

Við hvað eru menn hræddir? Af hverju mega ekki t.d. fulltrúar í nefndinni í stjórnarandstöðu eiga möguleika á að fara í andsvör út af gölnu nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar og spyrja einfaldra spurninga?

Ég spyr enn og aftur: Við hvað eru menn hræddir? Þetta eru óboðleg vinnubrögð. Ég undirstrika að það var markvisst sneitt fram hjá samráði, markvisst sneitt fram hjá samtali um sjávarútveginn í þessu. Það hefur ekkert verið gert til að reyna að koma til móts við eðlilegar raddir. Við munum fara yfir okkar tillögur á eftir. En mér finnst þetta ekki boðleg vinnubrögð og þetta veit ekki á gott í umræðu um þetta mál.