149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[11:00]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Hér kemur formaður atvinnuveganefndar upp og fabúlerar einhverja vitleysu um breytingartillögur minni hlutans. Í stað þess að við í stjórnarandstöðunni fáum að koma upp í andsvör og mögulega taka á þessari vitleysu raða stjórnarliðar sér upp í andsvör. Til hvers erum við hérna ef stjórnarandstaðan á ekki að fá tækifæri til að eiga í málefnalegum umræðum um svo mikilvægt mál við formann nefndarinnar?