149. löggjafarþing — 37. fundur,  23. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[11:40]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Sigurður Páll Jónsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Já, ég geri það og það kom fram í máli mínu í nefndarálitinu að hluti af veiðigjaldinu ætti að renna til sveitarfélaga. Mikið var rætt um það, þegar þessi lög voru sett á, en einhvern veginn náði það ekki nógu vel fram. Í lögum um opinber fjármál er þetta aftekið. Þetta er flækjustig. Lög eru mannanna verk og mér finnst að það ætti að breyta því. Enginn þeirra sem ég hef talað við, og ég get tekið undir það sjálfur, er á móti því að borga veiðigjöld og ef hluti af því rynni til sveitarfélagsins myndu þeir gera það með glöðu geði.