veiðigjald.
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti 2. minni hluta atvinnuveganefndar. Eins og fram hefur komið felur frumvarp sjávarútvegsráðherra til laga um veiðigjald í sér að lögfest verði ný heildarlög um veiðigjald og komi þau þá í stað gildandi laga frá árinu 2012. Lagt er til í frumvarpinu að reiknistofn veiðigjalds hvers árs byggist á afkomu við veiðar á hverjum nytjastofni fyrir sig, gjaldhlutfall veiðigjalds af reiknistofni verði 33% og að auki að veiðigjald verði ákveðið í lok hvers árs fyrir næsta almanaksár í stað þess að vera ákvarðað í ágúst fyrir komandi fiskveiðiár. Þá eru verkefni veiðigjaldsnefndar að mestu færð til embættis ríkisskattstjóra.
Lengi hefur verið deilt um veiðigjöld og álagningu þeirra í íslensku samfélagi og hefur núverandi löggjöf verið nokkuð gagnrýnd … — Herra forseti. Gæti ég fengið frið í salnum?
(Forseti (JÞÓ): Forseti biður um frið í salnum.)
… sérstaklega fyrir að styðjast við gömul gögn og innheimta því ekki á rauntíma. Segja má að einstaka atriði þessa frumvarps, eins og að færa innheimtuferlið allt nær í tíma, sé betrumbót á núverandi fyrirkomulagi. Heilt á litið telur 2. minni hluti frumvarpið þó illa unnið og ógagnsætt þar sem tölulegar forsendur eru óljósar, áhrif þess á innheimtu veiðigjalds liggja ekki fyllilega fyrir ásamt því að samráðsferli við gerð frumvarpsins var í mýflugumynd.
Annar minni hluti minnir á að þjóðin er einhuga um að auðlindir hennar skulu vera í varanlegri eign almennings. Skiptir það öllu máli. Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins staðfesti þann vilja þjóðarinnar og áréttum við í 2. minni hluta nefndarinnar að við samþykkt þessa frumvarps mun hlutur útgerðarinnar í arði af auðlindinni aukast á kostnað hlutar þjóðarinnar af arði eignar sinnar. Fyrirliggjandi frumvarp er ekki til þess fallið að auka fyrirsjáanleika um réttindi og skyldur útgerðarinnar né dregur það úr óvissu um framtíðarhorfur þessarar undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar.
Annar minni hluti gagnrýnir að ekki hafi gefist tími við undirbúning frumvarpsins til að kanna aðra kosti nægjanlega vel. Sömuleiðis er stór galli að ekki hafi gefist tími til að fara í gegnum samráðsferli það sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur komið á í gegnum svokallaða samráðsgátt. Er það sérstaklega bagalegt með tilliti til þess hversu margar alvarlegar athugasemdir komu fram í umsögnum um málið til nefndarinnar. Eins hafði ríkisstjórnin ekkert samráð við gerð frumvarpsins við stjórnarandstöðu og sýndi enga viðleitni til að ná sátt um þessa grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar sem þarf á stöðugleika að halda eins og allt íslenskt samfélag. Fyrirliggjandi frumvarpsdrög stefna einnig í þveröfuga átt við yfirlýst markmið laga um veiðigjöld frá árinu 2012 þar sem stefnt var að því að auka hlutdeild þjóðarinnar af arði auðlindarinnar, en ekki öfugt eins og hér er gert.
Flestar þær umsagnir sem bárust nefndinni snúa sérstaklega að áhyggjum af þeim áhrifum sem frumvarpið mun mögulega hafa á laun sjómanna vegna þeirrar skekkju sem felst í verðlagningu sjávarafla hjá samþættum útgerðum annars vegar og ósamþættum útgerðum og fiskvinnslum án útgerðar hins vegar. Komu fram alvarlegar athugasemdir um þetta t.d. frá Samkeppniseftirlitinu sem sagði í umsögn sinni, með leyfi forseta:
„Verði fyrirliggjandi frumvarp að lögum að óbreyttu mun sú skekkja í aflaverðmæti sem fram kemur í bókhaldi samþættra útgerða annars vegar og annarra útgerða sem selja afla á fiskmörkuðum hins vegar óhjákvæmilega valda mismunun í útreikningi á veiðigjaldi viðkomandi útgerða. Með hliðsjón af framangreindu vill Samkeppniseftirlitið beina þeim tilmælum til atvinnuveganefndar að brugðist verði við þeirri skekkju sem fram kemur í bókhaldi viðkomandi útgerða við vinnslu frumvarpsins áður en það verður að lögum.“
Meiri hluti atvinnuveganefndar telur að úrræði ríkisskattstjóra til að bera kennsl á skekkjur séu nægjanlegar og því þurfi ekki að bregðast við þessu. 2. minni hluti hafnar þessum rökum meiri hlutans og tekur undir áhyggjur Samkeppniseftirlitsins og telur að auka þurfa gagnsæi milli verðlagningarinnar umtalsvert til að raunverulega sé hægt að koma í veg fyrir slíka skekkju. Augljósasta leiðin til að bregðast við þeim vanda væri að fara einhvers konar markaðsleið, svo sem með útboðum á aflaheimildum, sem er leið sem 2. minni hluti mælir með. Ljóst er þó að nú er ekki fyrir því meiri hluti á Alþingi og þess vegna þarf að leita annarra leiða. Til dæmis mætti skoða betur til málamiðlunar að reikna 20% veiðigjaldsins út frá markaðsverði og líta til leiguverðs á kvóta í því sambandi en reikna 80% eftir þeirri leið sem lögð er til í fyrirliggjandi frumvarpi.
Annar minni hluti furðar sig á yfirlýstu markmiði frumvarpsins gagnvart jafnréttismálum og kynskiptum vinnumarkaði sem rök fyrir því að ekki eigi að vega hagnað af fiskvinnslu við ákvörðun veiðigjalds. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram, með leyfi forseta:
„Störf í landvinnslu hafa jafnan verið að meiri hluta á hendi kvenna. Þá má geta þess að konur hafa á síðustu árum verið mun sýnilegri í sjávarútvegi en áður. Nefna má að með frumvarpi þessu er ekki lagt til að vinnsla á sjávarafla verði hluti af reiknistofni veiðigjalds sem myndi fremur, samkvæmt þessu, koma við störf kvenna en karla.“
Við teljum, svo vægt sé til orða tekið, að hér sé um verulega villandi framsetningu að ræða, enda hefur fiskvinnsla aldrei greitt veiðigjöld. Í raun langar mig að bæta því við að mér finnst eiginlega til skammar að því hafi verið leyft að standa í frumvarpinu, að nýta málflutning jafnréttisbaráttunnar á þennan hátt. Hins vegar hefur hagnaður fiskvinnslunnar verið veginn inn í ákvörðun veiðigjaldsins. Það var m.a. gert til að mynda ekki hvata fyrir útgerðarfyrirtækin til að færa hagnaðinn frekar yfir á vinnsluna og hafa þannig áhrif á að veiðigjöldin lækki, eins og umsagnir sem bárust vara einmitt við. Í fyrirliggjandi frumvarpi er horfið frá þessu og því settur inn raunverulegur hvati fyrir þær útgerðir sem tækifæri hafa til að færa hagnaðinn í auknum mæli á vinnsluna. Sú breyting mun því fela í sér bæði lægri veiðigjöld og lægri laun til sjómanna, líkt og raunar flestir umsagnaraðilar málsins vara sérstaklega við eins og komið var inn á áðan.
Ljóst er að í frumvarpinu eru enn ýmsir þættir sem æskilegt hefði verið að gefa betri tíma til að ígrunda. Sérstaklega er óheppilegt að ekki sé hægt að hinkra eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu, en sú úttekt hófst í febrúar á þessu ári og mun skýrslan liggja fyrir um miðjan desember næstkomandi. Skýrslan mun fjalla um starfsemi Fiskistofu og eftirlit hennar með vigtun á afla og brottkasti undanfarin fimm ár. Þá mun hún jafnframt taka út eftirlit Fiskistofu með samþjöppun veiðiheimilda. Ljóst er að niðurstöður skýrslunnar geta skipt umtalsverðu máli gagnvart efni frumvarpsins. Athugasemdir umsagnaraðila renna einnig stoðum undir mikilvægi þess að niðurstöður skýrslunnar liggi fyrir áður en ráðist er í frekari breytingar á álagningu veiðigjalda. Í ljósi þessarar stöðu væri eðlilegast að gefa ráðuneytinu og atvinnuveganefndinni betri tíma til að vinna málið og framlengja þess í stað núverandi löggjöf um eitt ár.
Allt frá útgáfu skýrslu auðlindanefndar árið 2000 hefur ítrekað verið staðfest að meiri hluti þjóðarinnar vill að eignarhald þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindum í íslenski lögsögu sé staðfest í stjórnarskrá og að framsal nýtingarréttar sé tímabundið. Þetta er jafnframt það fyrirkomulag sem flest nágrannalönd hafa notað þegar þau hafa tekið upp kvótakerfi, svo sem Danmörk og Svíþjóð.
Á sama tíma og tímabundinn nýtingarréttur staðfestir eignarhald þjóðarinnar getur tímabinding tryggt meiri stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir útgerðina. Ekki þarf þá lengur að deila um hvort lagaleg óvissa sé um varanleika nýtingarréttarins eða eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum.
Í því ljósi eru það augljósir hagsmunir samfélags og útgerðar að tímabinda allan veiðirétt.
Að mati 2. minni hluta falla sterk rök að því að auðlindagjöld, eins og veiðigjald, renni í sérstakan sjóð fremur en í ríkissjóð eins og lagt er til í fyrirliggjandi frumvarpi. Þegar gjöld af því tagi renna í ríkissjóð er hætta á því að þolinmæði stjórnvalda fyrir þeim sveiflum sem jafnan einkenna slík gjöld verði mjög takmörkuð og tilhneiging skapist til að breyta innheimtu gjaldsins þegar illa árar til að mæta tekjuöflunarmarkmiðum.
Slík tilhneiging grefur undan forsendum gjaldsins. Sú staðreynd að aðferðafræði útreiknings og álagningar veiðigjalda hér á landi hefur verið breytt fjórum sinnum á undanförnum tíu árum bendir til þess að þetta sé vandamál sem huga þurfi að. Til að vinna gegn slíkum freistnivanda renna auðlindagjöld í öðrum löndum því að jafnaði í sérstaka sjóði. Eitt þekktasta dæmið um slíkan sjóð er norski olíusjóðurinn. 2. minni hluti telur mikilvægt að sveitarfélögin fái hluta af afrakstri þeirrar hagræðingar sem fiskveiðistjórnarkerfið hefur skapað sem bætur fyrir þann hluta kostnaðar hagræðingarinnar sem samfélagið þarf að bera. Önnur sveitarfélög fái einnig hlutdeild í arði af auðlindinni sem er eign þjóðarinnar allrar. Ennig mætti líta til þess möguleika að sóknaráætlanir landshluta gætu verið mögulegur farvegur fyrir þau verkefni sem fjármögnuð yrðu með hlutdeild í veiðigjaldi.
Herra forseti. Það er til margs að líta og mikilvægt að vanda vel til verka þegar framkvæma á heildarendurskoðun á gjaldheimtu fyrir afnotarétt af auðlind þjóðarinnar eins og ríkisstjórnin boðaði að til stæði þegar hún reyndi að þvinga í gegn lækkun á veiðigjöldum í lok þings síðastliðið vor. Þá ræddu stjórnarliðar um mikilvægi samráðs og sátta við slíka endurskoðun en því er því miður ekki fyrir að fara í fyrirliggjandi frumvarpi og voru engar tilraunir gerðar til samráðs við stjórnarandstöðuna, hvorki í undirbúningi ráðuneytisins né samtali í atvinnuveganefnd.
Að öllu framangreindu er það því mat 2. minni hluta að frumvarpið eins og það stendur nú sé ekki tækt til afgreiðslu, enda algerlega óljóst hverjar afleiðingar samþykktar þess verða fyrir ríkissjóð annars vegar og atvinnugreinina í heild sinni hins vegar. Fyrir utan þá augljósu staðreynd að ríkissjóður mun verða af hátt í 4 milljörðum kr. í tekjur á næsta ári verði frumvarpið að lögum. Slík forgangsröðun er að mati 2. minni hluta algerlega óásættanleg á meðan aldraðir og öryrkjar eru látnir bíða eftir réttlátum kjarabótum.
Undir þetta nefndarálit rita hv. þingmenn Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. Hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, sem situr fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi, er einnig samþykk þessu áliti.