veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er ánægður með að hv. þingmaður er sammála um að verið sé að auka skilvirkni innheimtunnar. Við treystum auðvitað ríkisskattstjóra fullkomlega til að taka að sér innheimtu. Afkomutengingin eins og meiri hlutinn leggur til — hv. þingmaður er sammála henni en dregur hér fram milliverðlagningu. Ríkisskattstjóri hefur fulla lagastoð til að taka á þeim þætti og ég treysti ríkisskattstjóra fullkomlega til þess. Ég er ánægður með að hv. þingmaður gerir það líka.
Ég á erfitt með að skilja það sem kemur fram í ræðu hv. þingmanns og snýr að því að veiðigjöldin eigi að renna í auðlindasjóð. Ég er á sömu slóðum og hæstv. ráðherra fór hér yfir vegna þess að endað er á því að skilja eigi eldri borgara og öryrkja eftir. Hvar ætlar fólk að fá peninga, eins og lagt var til í umræðu (Forseti hringir.) um fjárlög, í gríðarlegan útgjaldaauka ef þetta á allt saman að renna í einhvern sérstakan sjóð og geymast þar?