fjárframlög til háskólastigsins.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra hefur verið ónísk á að lofa eigin verk. Hún hefur sagt að verið væri að auka fé til háskólastigsins um 5% á næsta ári og að háskólarnir muni ná OECD-meðaltali 2020. Þetta hefur svo hver stjórnarþingmaðurinn á fætur öðrum lapið upp í fjárlagaumræðunni. Það væri vissulega ánægjulegt ef þetta væri rétt en hvort tveggja er rangt. Í fjárlögum kemur skýrt fram að árið 2019 bætast við 705 milljónir eða 1,6% umfram launa- og verðlagsbreytingar. Árið 2020 er svo gert ráð fyrir 463 milljónum eða 1.168 milljónum næstu tvö ár. Það er því hvorki verið að auka fjármagn til háskólastigsins um 5% á næsta ári, nema með beitingu einhverrar bókhaldsleikfimi, og við munum heldur ekki ná meðaltali OECD árið 2020. Til að ná því markmiði þyrfti að auka útgjöld um 3 milljarða til háskólastigsins á ári.
Fjármálaáætlun 2019–2023 gerir ráð fyrir 2,7 milljörðum til viðbótar næstu fimm árin til háskólastigsins í heild sinni. Við þyrftum að margfalda þá tölu til að ná meðaltali Norðurlandanna.
Ríkisstjórnin ætlar því hvorki að standa við þau loforð að háskólar nái meðaltali OECD-ríkjanna né Norðurlandanna á tímabilinu. Ráðherra virðist samkvæmt skilningi okkar og útreikningum ætla að stefna að meðaltali OECD eins og það var árið 2014.
Því spyr ég hæstv. menntamálaráðherra hvort hún fari vísvitandi með rangt mál og hvaða skýringar hún gefi á villandi málflutningi. Ætlar hæstv. ráðherra kannski að ná þessu markmiði með öðrum leiðum, svo sem með því að fækka nemendum?