veiðigjöld.
Herra forseti. Fyrrverandi sérstakur ráðgjafi fjármálaráðherra og sjávarútvegsráðherra í tíð þáverandi ráðherra Steingríms J. Sigfússonar, Indriði H. Þorláksson, skrifar grein í Kjarnann í dag. Þar segir m.a., með leyfi forseta, um veiðigjaldafrumvarpið:
„Greinargerð frumvarpsins ber þess merki að gæslumenn hagsmuna útgerðareigenda hafa, a.m.k. óbeint, stýrt penna þegar að skiptingu rentunnar kom. Í henni er tekið undir flestar þær bábiljur sem einkennt hafa áróður útgerðarmanna gegn veiðigjöldum allt frá upphafi. Það er til vansa að í greinargerð með jafn umdeildu og mikilvægu máli skuli settar fram, án rökstuðnings, fullyrðingar sem eiga sér engan stað nema í áróðri þeirra sem vilja áfram sitja yfir hlut þjóðarinnar. Stjórnvöld eiga að gæta hagsmuna almennings en ekki að gerast málpípa eigenda útgerðanna.“
Og áfram, með leyfi forseta:
„Greinargerð frumvarpsins endurómar mörg stef úr grátsöng útgerðarinnar. Veiðigjöldin dragi úr fjárfestingu í sjávarútvegi, dragi úr tæknilegum framförum, skerði samkeppnisstöðu, leggist á landsbyggðina o.fl. Staðhæfingar þessar eiga það sameiginlegt að vera hentifræði, styðja hagsmuni málflytjandans, eru auðtrúanlegar og slá ryki í augu þeirra sem ekki hafa forsendur eða tök á að rýna þær en eru ekki studdar neinum efnislegum eða fræðilegum rökum.“
Herra forseti. Tekur hæstv. forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna undir þessi sjónarmið og önnur sem koma fram í greininni? Ef hæstv. forsætisráðherra tekur ekki undir þau að fullu væri fróðlegt að vita hvað af þeim hún telur rangt og hvers vegna það er rangt.