149. löggjafarþing — 38. fundur,  26. nóv. 2018.

veiðigjöld.

[15:32]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég get tekið undir það sem kemur fram í lok þeirrar grein sem hann vitnar í, að frumvarpið, ef að lögum verður, getur skapað grunn fyrir málefnalega umræðu um þá spurningu í stað karps um tæknilegan tittlingaskít eins og verið hefur. Ég get tekið undir þá staðhæfingu hjá greinarhöfundi þeim sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson vitnar í.

Það frumvarp sem hér liggur fyrir um veiðigjöld snýst um það að við föllumst á að útgerðin eigi að greiða eðlilegan hlut af sinni auðlindarentu til þjóðarinnar. Þar er vitnað til þess að við séum að taka upp 33% gjaldhlutfall. Þegar við skoðum þetta kerfi tíu ár aftur í tímann og mátum þetta frumvarp við það, hefði það verið orðið að lögum fyrir tíu árum, hefði útgerðin verið að skila a.m.k. hálfum milljarði meira í ríkissjóð en hún gerði á þessu tímabili. Hins vegar hefur mikið verið bitist á um þetta á þessu tímabili, að fá þetta fram og fá þetta viðurkennt. Ég tel að þetta hafi verið viðurkennt og það sem er verið að gera með þessu frumvarpi er að færa álagninguna nær í tíma.

Ég verð að segja að ég hef furðað mig á þeim málflutningi sem hér hefur verið, að það sé í raun og veru ekki rétti tíminn til að gera það núna. Hvenær er rétti tíminn til að færa álagningu veiðigjalda nær í tíma? Er ekki eðlilegast að við miðum við þau raungögn sem eru fyrir hendi?

Sömuleiðis erum við að staðfesta þetta gjaldhlutfall en auka um leið afslætti til minni útgerða sem þýðir að stærstu útgerðirnar borga hlutfallslega meira en minni útgerðir. Þetta er annað sjónarmið sem við höfum ítrekað rætt í þessum sal og er staðfest með þessu frumvarpi. Ég tek ekki undir það að þetta frumvarp sé á nokkurn hátt illa unnið. Þarna er loksins verið að reyna að ná fram sjálfbæru kerfi um álagningu veiðigjalds þar sem tekin er upp aðferðafræði sem ég tel fremur auðskiljanlega og gagnsæja. Við getum auðvitað rætt endalaust hvert gjaldhlutfallið á að vera af veiðigjöldum en ég vitna til þess sem ég sagði hér: (Forseti hringir.) Ef þetta hefði verið í lögum undanfarin tíu ár hefðu veiðigjöldin skilað hálfum milljarði meira. Mér hefði þótt áhugavert að sjá frá hv. þingmanni og hans flokki þegar hann var í ríkisstjórn breytingar sem hefðu skilað meiru í þessum anda.