staða loðdýrabænda.
Virðulegur forseti. Ég reikna ekki með að það sé hægt að skipta um ráðherra þannig að ég held bara áfram. Í fréttum í gær sáum við, ég held að það hafi verið á Stöð 2, viðtal við loðdýrabónda á Suðurlandi þar sem hann lýsti stöðu þeirrar greinar. Í raun hefði kannski mátt varpa þessari fyrirspurn einnig til umhverfisráðherra vegna þess að hér er um að ræða mikilvægt umhverfismál líka.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er hvort ríkisstjórnin hafi fjallað um og sé búin að ganga frá einhverjum aðgerðum, einhverjum stuðningi til loðdýrabænda vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem er uppi í þeirri atvinnugrein. Einnig langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort verið sé að vinna að einhverjum sérstökum lausnum er varða sauðfjárbændur og hvort búast megi við þeim á næstu dögum.
Ástæðan fyrir að ég spyr um þetta hér er að staðan er vitanlega alvarleg, misalvarleg í þessum greinum, en alvarleg í þeim báðum að sjálfsögðu. Þegar kemur að umhverfisþættinum er ljóst að í framleiðslu á loðdýrafóðri er notað hráefni sem í fyrsta lagi er af mjög háum gæðum að sjálfsögðu, en er líka hráefni sem annars hefði þurft að urða eða brenna með einhverjum hætti. Ef ég man rétt er mjög takmörkuð tækni til á Íslandi til að brenna svona miklu magni af því hráefni sem er notað í fóðurframleiðsluna og þar af leiðandi er það mikið umhverfismál að hægt verði að nýta það til framleiðslu á verðmætum eins og verið er að gera, svo ég tali ekki um alla þá þekkingu sem tapast leggist þessi grein af. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er búið að taka einhverja ákvörðun um hvort eigi að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er og með hvaða hætti verður þá brugðist við?