veiðigjald.
Frú forseti. Það kom fram hjá hv. formanni Samfylkingarinnar, Loga Einarssyni, að stjórnvöld væru að ákveða í lokuðum herbergjum veiðigjaldið. Ég bara spyr: Hefur hv. þingmaður ekki kynnt sér þetta frumvarp? Hvaða bull er þarna á ferðinni? Það er einmitt verið að styrkja útreikninga á veiðigjaldi miðað við afkomu hverrar tegundar þar sem upplýsingar koma á sérstöku blaði frá ríkisskattstjóra úr reikningum viðkomandi útgerða og frá Fiskistofu um aflaverðmæti. Þannig er verið að vinna að því að fá afkomuverðmæti hverrar einnar og einustu tegundar og síðan er tekið meðaltal af því. Hefur hv. þingmaður ekki lagt sig eftir því að kynna sér þetta frumvarp fyrst hann er með eitthvert bull um að stjórnmálamenn ætli að fara að stýra veiðigjaldi?
Og í öðru lagi vil ég spyrja hv. þingmann, en það hefur nú heyrst frá honum áður úr þessum ræðustól að það sé í góðu lagi að einhver fyrirtæki í sjávarútvegi fari á hausinn: Hvaða afleiðingar telur hann að það hafi ef veiðigjöldin eiga að vera rúmir 12 milljarðar á næsta ári miðað við það að veiðigjöld á þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki hækkuðu á milli ára 2017 og 2018, um 200% og jafnvel 300%? Það hefur komið ákall frá þessum litlu og meðalstóru fyrirtækjum vítt og breitt um landið í veikum sjávarbyggðum að við þetta verði ekki búið.
Hvað á að gera? Á að taka réttinn til þess að stunda útgerð í þessum sjávarplássum og senda einhverjar bætur til þess fólks sem hefur haft lífsviðurværi sitt af vinnu í kringum sjávarútveg og þjónustu við hann? Þetta er mjög furðuleg nálgun hjá hv. þingmanni sem ber ábyrgð á því að atvinnulíf í landinu þróist með eðlilegum hætti.