149. löggjafarþing — 38. fundur,  26. nóv. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[19:34]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil einfaldlega taka undir beiðni hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um að við fáum skýrt svar við því hvort við fáum matarhlé. Við þingsflokksformenn gerðum ekki athugasemdir við að það yrði kvöldfundur en ef það er ekki matarhlé í kvöld er augljóst að við þurfum alltaf að fá skýrt fram í hvert skipti sem við veitum samþykki okkar fyrir kvöldfundum hvort sú viðtekna venja verði höfð í heiðri að þingmenn fái matarhlé. Við höfum það þá bara á bak við eyrað.