fundur forsætisnefndar vegna "Klausturmálsins".
Forseta er nauðugur sá kostur en um leið rétt og skylt að fara nokkrum orðum um atburð sem tekið var að fjalla um frá og með kvöldi miðvikudagsins 28. nóvember sl. Opinbert hefur orðið að hópur þingmanna úr tveimur þingflokkum sat á veitingahúsi hér í nágrenni við þinghúsið að hluta til á meðan þingfundur stóð þriðjudagskvöldið 20. nóvember sl. og ræddi þar sín á milli á almannafæri þannig að útbreidda og eðlilega hneykslun hefur vakið.
Orðbragð sem þarna virðist sannanlega hafa verið viðhaft er óverjandi og óafsakanlegt. Ekki síst er það með öllu óverjandi og úr takti við nútímaleg viðhorf hvernig þarna var fjallað um konur og hlut kvenna í stjórnmálum og einnig fatlaða og hinsegin fólk. Það er löngu tímabært og lýðræðisskipulaginu lífsnauðsynlegt í nútímanum að útrýma öllu ómenningartali af því tagi úr stjórnmálum og þar verðum við öll að leggja okkar af mörkum.
Forseti lítur svo á að trúverðugleiki Alþingis, sem að sjálfsögðu ber ekki ábyrgð sem slíkt á óráðshjali þingmanna utan veggja þinghússins heldur þeir sjálfir, liggi engu að síður við í því að tekið verði á málinu í fullu samræmi við alvarleika þess. Forseti heitir því að það verði gert.
Forseti vill einnig og þegar á þessari stundu biðja aðra þingmenn en þá sem hlut áttu að máli og sérstaklega þá, og aðra einstaklinga, sem nafngreindir voru sem og aðstandendur þeirra afsökunar. Ég vil biðja starfsfólk okkar, konur, fatlaða, hinsegin fólk og þjóðina alla afsökunar.
Forseti vill upplýsa að málið hefur þegar verið sett í farveg af hálfu forsætisnefndar. Á fundi sínum fyrr í dag fjallaði nefndin um málið og ákvað að hefja skoðun þess sem mögulegs siðareglubrotamáls og enn fremur að leita álits ráðgefandi nefndar, samanber 16. gr. siðareglna. Bókun forsætisnefndar um málið verður gerð opinber nú á eftir.
Að öðru leyti vonar forseti og óháð þessu að við getum sinnt okkar störfum og rækt okkar skyldur sem mest ótruflað af þeim ólánsatburði. Lífið heldur áfram og það gera störf Alþingis Íslendinga einnig. Forseti fer fram á að við hlífum okkur sjálfum og þjóðinni við umræðum um þetta að öðru leyti hér í þingsal að svo stöddu. Samkvæmt lögum, reglum og stjórnskipulagi Alþingis heyra mál af þessu tagi undir forsætisnefnd og þar er málið þegar á dagskrá, eins og áður sagði.
Forseti vill að lokum upplýsa að yfirlýsing þessi er flutt að undangengnu samráði við formenn allra þingflokka.