Bankasýsla ríkisins.
Virðulegi forseti. Já, staðan er dapurleg en um leið þýðir ekkert að láta deigan síga. Við höldum áfram ótrauð og tökumst á við þau verkefni sem fram undan eru. Persónulega hef ég fengið minn skerf af öllu þessu, bæði sem einstaklingur og sem öryrki. Það breytir ekki þeirri staðreynd að ég kem hér í óundirbúnar fyrirspurnir til að halda áfram þingstörfum. Ég vil beina óundirbúinni fyrirspurn til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra.
Mér hefur verið afskaplega umhugað um hina svokölluðu Bankasýslu ríkisins. Ég óskaði eftir skriflegu svari fjármála- og efnahagsráðherra á sínum tíma um það mál. Bankasýslan starfar samkvæmt lögum nr. 88/2009, sem tóku gildi 20. ágúst það sama ár. Ég ætla að vitna í 9. gr., þar sem segir:
„Stofnunin skal hafa lokið störfum eigi síðar“ — ég endurtek: eigi síðar — „en fimm árum frá því að hún er sett á fót og verður hún þá lögð niður.“
Það fer ekkert á milli mála, samkvæmt öllu því sem ég hef lært í lögfræði, að þetta tekur af allan vafa, þetta ákvæði, samkvæmt orðanna hljóðan. Þann 20. ágúst 2014 hafði þessi stofnun þannig ekkert lögmæti.
Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hvað með alla gjörningana sem gerðir voru á meðan þessi stofnun, Bankasýsla ríkisins, starfaði hér án nokkurs lögmætis? Hvernig má fara með það?