149. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[16:43]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Eins og fram kom í upphafi þegar þetta mál var til umfjöllunar í þingflokki mínum gerði ég fyrirvara við það frumvarp sem hér liggur fyrir um veiðigjöld og varðaði sá fyrirvari stöðu lítilla og meðalstórra útgerða og erfiðleika þeirra í dag.

Við í atvinnuveganefnd leggjum hér til breytingartillögu sem styrkir mjög þessa útgerðarflokka, litlar og meðalstórar útgerðir, þ.e. að miða frítekjumarkið við 40% af fyrstu 6 milljón króna álagningar hvers árs. Teljum við það styðja mjög vel við þetta útgerðarform sem við þurfum nauðsynlega að hafa til að tryggja vel byggðafestu vítt og breitt um landið, í sjávarbyggðunum. Ég tel að það muni gagnast litlum og meðalstórum útgerðum mjög vel og koma sterkar út en sá afsláttur í frítekjumarki sem fyrir var.