útflutningur hrossa.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágætisræðu. Gaman að tala við hv. þingmann um hross (Gripið fram í: Í oss.) í oss sem utan. Af því að hv. þingmaður kom aðeins inn á hlutverk sjóðsins og rannsóknir, bókaútgáfu og fleira slíkt langar mig að spyrja hv. þingmann um það — af því að hér er í raun og veru bara aftur, ekki ósvipað málinu sem við vorum að fara yfir áðan, þ.e. hér er ekki verið að fara í einhvers konar heildarendurskoðun á lagaumhverfi akkúrat þessa málaflokks heldur mjög afmarkað mál sem snýr að upphæð og innheimtu — hvort hv. þingmaður telji að hægt sé að klára þetta mál og fara síðan í einhverja almenna endurskoðun eða úttekt á því hvernig sjóðnum er svo ráðstafað.
Við fengum í hv. atvinnuveganefnd ágætisyfirlit yfir það í hvað fjárveitingar hafa farið á vegum sjóðsins og þar eru mörg þörf verkefni. Svo langar mig í annan stað að spyrja hv. þingmann aðeins út í gjaldið sjálft. Því að hér, eins og ég hef skilið, hefur hugsunin verið sú að það að hafa ræktað upp þennan eftirsótta íslenska hrossastofn sé nokkurs konar samvinnuverkefni okkar allra, ekki síst hrossaeigenda. Þegar þeir selji síðan hross úr landi þá séu þeir að njóta þeirrar samvinnu og því sé ekki óeðlilegt að kaupandinn greiði þetta gjald til að koma á stofn þessum sjóði, þ.e. ekki seljandinn sem greiði það heldur kaupandinn. Er hv. þingmaður í prinsippinu á móti þeirri hugsun?