útflutningur hrossa.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir góða ræðu. Ég hjó eftir því að þingmaðurinn var að tala um að staldra við þegar þetta mál kom fyrir í nefndinni, ég hugsaði það líka á þeim tíma að staldra við og vera ekki með. Sérstaklega eftir umfjöllun í nefndinni vegna þessarar umræðu um skattahækkun og af hverju ríkið væri að véla með þetta sem millifærsluaðili og annað slíkt.
Eftir umfjöllun þá komst ég að því að maður vildi halda þessu máli lifandi, halda þessum sjóði áfram í gangi með þeirri hvatningu að vinna að því að efla hann og finna nýjar leiðir. Þingmaðurinn spurði í ræðunni: Af hverju sér ekki greinin um þetta sjálf? Mér fannst hún í andsvari við hv. þm. Kolbein Óttarsson Proppé koma með einhvers konar útskýringu á því. Hvernig hugsar þingmaðurinn þá leið? Sér þingmaðurinn einhverja leið í því hvernig greinin myndi sjá um þetta sjálf?