149. löggjafarþing — 41. fundur, 4. des. 2018.
útflutningur hrossa.
179. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir þetta svar og í raun er ég ekkert ósammála henni í þessum spekúlasjónum, þessum hugsunum hennar. Ég var bara með þann vinkil að ég vildi ekki stoppa málið vegna þess að við værum að horfa til einhverra breytinga þótt við færum í þessa vegferð. Ég hef í raun ekki meira um það að segja, þakka bara hv. þingmanni fyrir svörin.