útflutningur hrossa.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka framsögumanni nefndarálits í þessu máli fyrir ágæta framsögu og yfirferð. Hér ræðum við frumvarp til laga um breytingu á lögum um útflutning hrossa, með síðari breytingum, gjald í stofnverndarsjóð. Eins og fram hefur komið í umræðum lítur fólk þann sjóð, utanumhald um hann og hvernig að honum er staðið misjöfnum augum. Menn eru ekki sammála hvort við erum að tala um skatt eða gjald og hvernig það er túlkað. Ég ætla ekki að fara í greiningu á því hvernig þingmenn horfa á hlutina, enda erum við sem betur fer þess eðlis að við erum ólík og lítum hlutina ekki alveg sömu augum.
Ef ég gríp aðeins niður í inngang frumvarpsins er tilgangurinn með því að leggja til breytingar á 6. gr. laga um útflutning hrossa. Frumvarpið er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í samræmi við tillögur frá Bændasamtökum Íslands. Frumvarpið felur í sér að gjald fyrir hvert útflutt hross hækkar úr 1.500 kr. í 3.500 kr. Hér hafa komið fram sjónarmið um að aukið gjald muni breyta einhverju í útflutningi. Ég get ekki séð að 2.000 kr. ofan á heilt hrossverð og allt sem fylgir útflutningi á einu hrossi eða fleiri hrossum breyti öllu í því samhengi.
Ég hef þann skilning að komið hafi fram krafa frá samtökum íslenskra hrossaræktenda um að þessu yrði svona fyrir komið. Ekki er að sjá að uppi sé bullandi ágreiningur, eins og hv. þingmaður tók til orða, þótt einhverjir séu ekki sammála nálguninni. Þetta er unnið á félagslegum grunni og samtök hrossaræktenda vilja hafa hlutina á þennan hátt. Mér finnst ekki óeðlilegt að við horfum til þess hvernig menn vilja sjá hlutina þarna.
Ef við förum yfir það í hvaða verkefni peningarnir hafa farið er það mjög athyglisvert og eru fjöldamörg verkefni sem liggja fyrir. Ef ég skil það rétt greiða þeir kaupendur gjald sem flytja hrossið út og er það þá yfirleitt fólk sem býr annars staðar en á Íslandi sem greiðir í sjóðinn. Þeir hafa klárlega hag af því vegna þess að stór hluti upphæðanna í sjóðnum hafa farið til Hóla í Hjaltadal. Það hafa miklir peningar farið þangað og þar er náttúrlega setur íslenska hestsins. Þar fara fram miklar og merkilegar rannsóknir og þar er líka utanumhald um útgáfu efnis um íslenska hestinn, sem ber hróður hans víða. Við erum með mjög merkilega skepnu hér. Íslenskir bústofnar eru um margt sérstakir og við þekkjum öll eiginleika íslenska hestsins, fjölbreytta liti og gangtegundir.
Það er því mikilvægt að við verndum íslenska hestinn og hafa peningar farið í styrki til námsmanna og verið stutt við nýsköpun og ýmsar framkvæmdir, jákvæðar og góðar. Um leið erum við að styrkja íslenskan landbúnað því að hrossarækt er hluti af íslenskum landbúnaði. Við þurfum að nýta landið og við þurfum að nýta ræktunina. Það þarf að slá tún og heyja fyrir hrossin.
Ef ég tæpi á nokkrum rannsóknum og fer yfir í hvað aurarnir hafa runnið þá voru árið 2012 í gangi þjálfunarlífeðlisfræðirannsóknir á íslenska hestinum við Háskólann á Hólum. Í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri var það staða upprunalandsins í alþjóðlegri ræktun íslenskra hrossa. Svo er það tilraunastöðin að Keldum sem fékk úthlutað í rannsóknir á þróun gammaherpessýkinga í hrossum.
Það voru alla vega tvær úthlutunar árið 2013, þjálfunarlífeðlisfræðirannsóknir á íslenska hestinum við Háskólann á Hólum og svo hlutlægt mat á hreyfingum og gangtegundum íslenska hestsins.
Ef við förum yfir árið 2014 var það tannheilbrigði íslenskra keppnishesta. Þá var önnur rannsókn í Landbúnaðarháskóla Íslands, mat á föstum hrifum sýninga við kynbótadóma íslenska hestsins og samanburðarhæfni kynbótadóma í mismunandi aðildarlöndum. Einnig er önnur rannsókn, þjálfunarlífeðlisfræðirannsóknir á íslenska hestinum, sem er áframhald.
Þá erum við komin að árinu 2015. Ég ætla að leyfa mér að fara yfir þessar styrkveitingar því að ég held að máli skipti í hvað peningum er varið og mér sýnist þeim hafa verið vel varið. Árið 2015 eru áfram þjálfunarlífeðlisfræðirannsóknir á íslenska hestinum. Svo eru það Bændasamtök Íslands – WorldFengur, skeiðgen með DNA, framþróun við DNA-verkefni; erfðarannsókn á drómasýki í íslenska hestinum; þróun á kynbótamati íslenska hestsins; áhrif holdastigs íslenskra hesta á efnaskipti, þrek, jafnvægi í hreyfingum og endurheimt. Þá er það þýðing og prentun á knapamerkjabókum. Það er snjalltækjavæðing á worldfengur.com. Þar kemur að utanumhaldi á skrásetningunni og bókhaldinu um þetta allt saman. Svo er það könnun á mati á eiginleikanum vilji og geðslag í kynbótadómi í íslenskri hrossarækt.
Við erum þá komin að árinu 2016. Það er virkni mismunandi méla og líffræðileg áhrif þeirra á munn hesta. Svo fær Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum styrk í rannsókn á veiruskitu í folöldum. Svona mætti lengi telja, til að mynda hreyfingafræði íslenska hestsins, ræktun, þjálfun, velferð. Matís ohf. og Bændasamtökin standa fyrir fjölgun erfðamarka. Á Háskólanum á Hólum er erlend rannsókn með erlendri yfirskrift sem ég hugsa að ég láti hjá liggja að lesa upp. Þá er enn þýðing og prentun á knapamerkjabókum, sem er eitthvað sem þarf að vera í endurskoðun. Svo er það gagnabanki og upplýsingaveita um íslenskra hrossaliti. Það er mjög áhugavert og mikill áhugi fyrir því í ljósi þess að enn eru að koma fram nýir hrossalitir. Það hlýtur að vera töluvert áhugamál hjá mörgum að fylgjast með því og fara yfir það reglulega.
Svo er það þróun ræktunarmarkmiðs og dómskerfi í íslenskri hrossarækt, þá erum við komin á árið 2017. Það er Tilraunastöðin að Keldum sem er með heilraðgreiningu á erfðaefni EHV-3 veiruræktar úr íslensku hrossi og Sögusetur íslenska hestsins með Íslenski hesturinn – þjóðarhesturinn, efling og uppgangur við fullveldi. Það á aldeilis vel við núna. Sögusetur íslenska hestsins gefur líka út Íslenski hesturinn – þjóðarhesturinn, útgáfa bókar um íslenska hrossarækt og hestamennsku. Það hlýtur að vera athyglisverð og góð bók af því að íslenski hesturinn hefur, eins og íslenska sauðkindin, sem er kóróna sköpunarverksins, lifað með okkur frá því við komum fyrst til landsins. Svo er það myndefni frá landsmóti, kaup og vinnsla á myndefni fyrir landsmót og vistun í WorldFeng. Það hlýtur að vera töluvert mikið utanumhald um það.
Hér hef ég tæpt á einhverjum þeirra verkefna sem fjármunir úr sjóðnum hafa runnið til. Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt.
Ekki ætla ég að segja að ég sé fær um að gefa það út hvort hægt sé að hafa betri hátt á þessu með einhverju öðru fyrirkomulagi en þetta hefur klárlega skilað sér. Við þurfum að auka veg og virðingu íslenska hrossins og bera hróður þess um víðan völl og úti um heim.
Það er mjög ánægjulegt að þetta gjald hefur, eðlilega, líka runnið líka til námsmanna sem vinna að ýmsum rannsóknum, sem er hluti af námi þeirra. Þeir hafa í rauninni stutt við nýsköpun, sem ég held að sé mjög jákvætt.
Þetta kemur fram í frumvarpinu undir liðnum Tilefni og nauðsyn lagasetningar, hæstv. forseti:
„Í 6. gr. laga um útflutning hrossa er mælt fyrir um gjaldtöku af hverju útfluttu hrossi og verður gjaldinu því ekki breytt nema með setningu laga. Hækkun gjaldsins er gerð að tillögu Bændasamtaka Íslands, en beiðni um hækkun gjaldsins barst ráðuneytinu fyrst í nóvember 2015 í kjölfar þess að Félag hrossabænda og fagráð í hrossarækt höfðu ályktað um það. Bændasamtök Íslands benda á að auknar tekjur muni efla sjóðinn til að takast á við þau verkefni sem honum er ætlað að styðja við, þ.e. að veita styrki til þróunar- og rannsóknarverkefna í hrossarækt.“
Þessu er klárlega fylgt eftir og þau verkefni sem ég hef talið upp eru sönnun þess að peningarnir hafa runnið til slíkra hluta. Eins og ég sagði áður er gjaldið að hækka úr 1.500 kr. í 3.500. Ég held að í heildarmyndinni og í kostnaði við útreikninga á hrossi sé það varla stórt og mér finnst hæpið að það verði einhver fyrirstaða eða hafi í för með sér breytingu á vilja fólks og löngun og getu til að flytja út hross í þeirri mynd, ég sé það ekki. Enda kemur fram í kaflanum um mat á áhrifum að talið er að frumvarpið muni hafa óveruleg áhrif á fyrirtæki og einstaklinga sem stunda útflutning á hrossum, með leyfi forseta:
„Hækkun gjaldsins er talin óveruleg og mun hún því ekki hafa áhrif á heildareftirspurn eða einstaka markaði. Verði frumvarpið að lögum mun það ekki hafa áhrif á stöðu kynjanna, þar sem ákvæði þess koma ekki með misjöfnum hætti niður á fyrirtækjum eða einstaklingum. Frumvarpið hefur áhrif á útflytjendur hrossa en ekki liggja fyrir tölulegar upplýsingar um kynjahlutfall hrossaræktenda.“
Svo mörg voru þau orð. Ég hef lesið nefndarálitið, sem er stutt og laggott, og þar leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Ég sé ekki annað en að ég muni styðja það þegar þetta mál kemur til afgreiðslu og treysti því að nefndin hafi farið vel yfir allar athugasemdir og allar umsagnir sem bárust. Þær sem ég hef skoðað og rennt yfir eru að stærstum hluta mjög jákvæðar og styðja frumvarpið. Komið hefur fram að stofnverndarsjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt við mjög mikilvæg verkefni í íslenskri hrossarækt. Það er mikilvægt, það er jákvætt og það er gott. Ég vona að þetta mál fái framgang. Vissulega getum við haldið áfram að ræða málin og ekkert annað en sjálfsagt að gera það. Ef við sjáum einhvern flöt á því að gera þetta á annan eða betri eða skilvirkari hátt er ég meira en tilbúinn til að skoða það og taka þátt í því samtali.