149. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2018.

útflutningur hrossa.

179. mál
[16:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið, síst í ljósi þess að þingmaðurinn sem var hér uppi, hv. þm. Þórunn Egilsdóttir, fór meira og minna með ræðuna mína þegar kom að styrkveitingum úr hinum fræga stofnverndarsjóð íslenska hestsins.

Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kallaði eftir því áðan að Sjálfstæðismenn tjáðu sig um þetta frumvarp og þess vegna finnst mér ástæða til að gera það.

Eins og kom fram í andsvörum mínum áðan vakti þetta frumvarp athygli mína fyrst þegar það kom fram, ekki síst vegna þess að hér er verið að tala um gjald í stofnverndarsjóð. Ég hafði ekki hugmynd um hvað stofnverndarsjóður íslenska hestsins væri og vissi hreinlega ekki til þess að slíkur sjóður væri til.

Ég mun greiða þessu frumvarpi atkvæði mitt þrátt fyrir að hér sé verið að tala um töluvert mikla hækkun á þessu gjaldi. Í prósentutölum er mjög mikið að fara úr 1.500 kr. í 3.500 kr. en ég tek undir það sem aðrir þingmenn hafa sagt um stóra samhengið. Þegar verið er að flytja út hross er það væntanlega vegna þess að virði þeirrar er töluvert og í þeim efnum held ég að 3.500 kr. séu ekki óyfirstíganleg upphæð.

Eins og ég kom líka aðeins inn á í andsvari mínu finnst mér alltaf ástæða til að við hugum að því þegar við fáum svona mál inn á okkar borð og jafnvel oftar hvernig hægt er að taka til í lagasafninu okkar, ef svo má að orði komast. Ég velti hreinlega fyrir mér nauðsyn þessa sjóðs. Nú viðurkenni ég að ég hef ekki lagst yfir það mál, það kann vel að vera að þessi sjóður sé alveg gríðarlega mikilvægur en ég held að það sé full ástæða til að skoða það og ég tek undir það í nefndarálitinu þegar meiri hlutinn hvetur til þess að breytingarnar verði skoðaðar í samráði við þá sem starfa í greininni en mælir engu að síður með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt að svo stöddu.

Hv. þm. Þórunn Egilsdóttir fór ágætlega yfir það hverjir hafa hlotið þessa styrki og það var eiginlega það sem ég hafði hug á að segja því að hér fá til að mynda mjög margar opinberar stofnanir styrki úr þessum sjóði. Háskólinn á Hólum er hér mikið, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum, aftur Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskólinn, einhverjir einstaklingar, Landbúnaðarháskólinn, Háskólinn á Hólum, Bændasamtök Íslands sjálf sem samt sem áður halda utan um þetta, Bændasamtök Íslands aftur, Háskólinn á Hólum, Bændasamtök Íslands, einstaklingar, Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum, Háskólinn á Hólum, Bændasamtökin og Matís, Háskólinn á Hólum, Bændasamtök Íslands, Tilraunastöð HÍ, Sögusetur íslenska hestsins tvisvar sinnum, landsmótið og svo aftur Bændasamtök Íslands.

Mér finnst ástæða til að við veltum fyrir okkur hvort þetta sé besta fyrirkomulagið til að styrkja þau góðu verkefni sem þarna eru. Ég efast ekki um að það er örugglega verið að vinna mjög góð verkefni. Ég vil bara ítreka það sem ég hef sagt hér áður, að þegar kemur að því að við erum með opinbera styrki til að veita í góð verkefni, hvort sem það er nýsköpun eða þróun, rannsóknir eða annað, er mikilvægt að þetta umhverfi sé skýrt og einfalt, fólk viti hvert eigi að sækja, það séu ekki margir sjóðir úti um allt sem allir kosta töluverðu til í að halda utan um sjóðina, við að fara yfir umsóknir, leggja mat á þær og annað þess háttar, heldur væri einfaldara, betra og skilvirkara ef það væru færri aðilar með skýrar reglur og þar af leiðandi væri kostnaðurinn minni í hverju tilfelli fyrir sig við yfirferð umsókna og annað.

Það er fyrst og fremst það sem ég vildi koma á framfæri og ég ítreka það sem kemur fram í nefndarálitinu, að það sé ástæða til að endurskoða þetta fyrirkomulag í heild sinni. Þá langar mig að velta líka upp tilurð sjóðsins og hvort fleiri stofnverndarsjóðir séu til, þá ekki endilega vegna hrossa heldur annarra búfjártegunda, og hvort það megi horfa á einhverja samþættingu og sameiningu slíkra sjóða.