149. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2018.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

155. mál
[17:41]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Jón Steindór Valdimarsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og það er rétt að hnykkja á því að efnisleg afstaða er ekki tekin í þessu áliti 1. minni hluta. Það þýðir ekki að flutningsmenn hafi ekki skoðanir á því hvort umræddar breytingar séu heppilegar eða ekki eða hvort gera ætti þetta með öðrum hætti. En í ljósi þeirrar niðurstöðu sem minni hlutinn kemst að í málinu er alveg fallið frá því að fjalla efnislega um tillöguna í sjálfu sér og breytingin felur það í sér að lýsa yfir þessu hlutleysi.

Já, það er rétt skilið hjá hv. þingmanni að a.m.k. sá sem hér stendur er þeirrar skoðunar að skipa eigi þessum málum án atbeina Alþingis. Á hinn bóginn tek ég undir með hv. þingmanni að ekki er þar með sagt að framkvæmdarvaldið hafi fullkomlega frjálsar hendur um að gera hvað sem er. Hv. þingmaður nefndi almennar reglur um hlutina. Það getur vel verið að það þyrfti að skoða það samhliða að setja almennar reglur — og að hluta til eru þær í lögunum um Stjórnarráðið — um hvaða sjónarmið eigi að ráða þegar þessum málum er skipað.

Kannski — ég segi kannski, ég er ekki búinn að horfa á það með þeim gleraugum — er hægt að skýra þennan almenna ramma sem menn hafa til þess að stýra málum sínum eftir, en með því marki að ekki sé sniðinn of þröngur stakkur. En að sama skapi ekki alveg þannig að menn geti ákveðið að rétt sé að forsætisráðherra einn sinni öllum verkefnum framkvæmdarvaldsins.