breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Þetta eru út af fyrir sig áhugaverðar vangaveltur og margt kunnuglegt í þessu. Í raun má segja að pólarnir séu tveir. Annars vegar er um það að ræða að ráðuneyti, stofnun þeirra, niðurlagning og eftir atvikum rammi um starfsemina, eigi að vera lögbundin og hins vegar það sjónarmið að um sé að ræða skrifstofur á vegum framkvæmdarvaldsins sem framkvæmdarvaldið eigi að hafa nokkuð frjálsar hendur um að breyta eftir því sem hentar á hverjum tíma.
Þrátt fyrir að ég sé enginn aðdáandi laganna frá 2011, taldi reyndar að þar hefði ýmislegt farið úrskeiðis í lagasetningu, verðum við þó að segja að í niðurstöðunni er verið að reyna að fara bil beggja milli þessara sjónarmiða með því að leggja meira vald á framkvæmdarvaldshliðina en áður hafði verið, en þó þannig að Alþingi hefði aðkomu að stofnun nýrra ráðuneyta og niðurlagningu þeirra í raun og veru. Það var hugmyndin á bak við þetta. Með þeim hætti var verið að reyna að brúa bilið milli ákveðinna sjónarmiða í þessum efnum.
En til að forma spurningu til hv. þingmanns myndi ég segja: Er það ekki fullmikið framsal á valdi til framkvæmdarvaldsins að segja að að þessu leyti beri (Forseti hringir.) framkvæmdarvaldinu ekki að bera stofnun nýrrar stofnunar undir þingið meðan aðrar stofnanir á vegum hins opinbera þurfi alltaf að styðjast við lagaákvæði?