149. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2018.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

155. mál
[17:45]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Jón Steindór Valdimarsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hugleiðingar og spurningu. Sjálfsagt er ekkert algerlega einhlítt í öllum þessum málum. Ég held þó að nútíminn og nútímastjórnarhættir, hraði þjóðfélagsbreytinga, séu með þeim hætti að skynsamlegt sé að kerfið sé mjög sveigjanlegt og ekki svifaseint. Ég er ekki endilega viss um að Alþingi sé í sjálfu sér best til þess fallið að ákveða nákvæmlega hvaða ráðuneyti eru nauðsynleg á hverjum tíma.

Maður getur svo líka spurt sig: Hvað gerist nú ef forsætisráðherra kemur með þingsályktunartillögu um tiltekna skipan ráðherra eða ráðuneyta, og er þá með í huga einhverjar hrókeringar í ríkisstjórn sinni, og Alþingi tæki upp á því að segja nei? Hvað gerist þá? Er þá ríkisstjórnin fallin eða á forsætisráðherra að sætta sig við að vera sendur til baka og ná ekki fram þeim breytingum sem hann vill? Ég veit ekki hvort það er heppilegt. Hvort leggja á niður eða setja á fót stofnanir á borð við ráðuneytin eða skrifstofur án atbeina Alþingis? Já, ég held að það geti alveg gengið upp. Eftir sem áður erum við með ramma sem eru auðvitað lögin um Stjórnarráð Íslands hvaða verkefni og hvaða sjónarmið skuli vera þar uppi. Það kann vel að vera að laga þyrfti þann ramma til ef svona breyting gengi í gegn. (Forseti hringir.) En já, ég held að við ættum að láta framkvæmdarvaldinu eftir að skipuleggja sjálft sín störf.