breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Ég hef mjög margar skoðanir á ýmsu þannig að ég get alveg staðið hér og haft uppi mínar skoðanir og skoðanaleysi um ýmsa hluti. Ef maður hugsar sér pólitíkina í þessu þegar kemur að stjórnarmyndun, hvernig flokkar koma sér saman um að skipuleggja sína ríkisstjórn, þegar á mögulega að velta fyrir sér hvar samlegðaráhrifin eru best o.s.frv., þá veltir maður fyrir sér hvort það sé heppilegt að taka það inn í þingið, kannski vegna þess hvernig flokkspólitíkin getur stundum þvælst fyrir góðum málum. Ég veit það ekki.
Mér finnst þó vert að þingið fjalli um þetta á einhvern hátt og ræði málið eins og við erum svo sem að gera. Við erum að ræða það, við erum að fjalla um það og það var mjög þarft að fá inn gesti sem höfðu einnig á þessu ýmsar skoðanir. Maður veltir fyrir sér hvort þetta verði ekki á endanum að vera ákvörðun forsætisráðherra á hverjum tíma. Þó er það þannig að við erum með fjárveitingavaldið. Þá er spurningin: Ætlum við að láta forsætisráðherra ákveða uppskiptingu ráðuneyta bara út í hið óendanlega af því að viðkomandi ráðherra sýnist svo? Ég er ekki viss um að Alþingi væri tilbúið til þess.