breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Þetta mál er ekki mikið að efni og sú ákvörðun sem óskað er eftir að þingið taki afstöðu til er í grunninn ekki flókin. Málið er lagt fram til að kalla fram afstöðu Alþingis til þeirrar tillögu forsætisráðherra að velferðarráðuneytinu verði skipt upp þannig að heilbrigðishlutinn verði sér og félagsmálahlutinn verði sér. Þar af leiðandi er verið að bakka, ef svo má segja, aftur til þess fyrirkomulags sem var fyrir breytingu sem átti sér stað í kjölfar stjórnarráðslaganna 2011. Verið er að fara aftur í það að stofna heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti. Það er í raun og veru það eina sem þingið er beðið að taka afstöðu til.
Vangaveltur eða skýringar sem fram koma í greinargerð um frekari hugmyndir um verkaskiptingu og annað — ég lít svo á að það sé fyrst og fremst lagt fram til kynningar og umræðu í þinginu en ekki sé verið að kalla eftir afstöðu til þess í sjálfu sér, þó að ég ítreki það sem ég sagði áður um það að ég tel að sú umræða sé af hinu góða og ágætt að þingið fjalli um þá þætti. En afstaðan sem kallað er fyrst og fremst eftir er þessi: Telur þingið þau áform forsætisráðherra að stofna í raun og veru tvö ráðuneyti á grundvelli eins sé til bóta eða ekki? Ég styð þá stefnu. Ég tel að rétt sé og eðlilegt að skipta þessu upp með þeim hætti og í meginatriðum lýst mér ágætlega á þá hugmynd um verkaskiptingu sem gert er ráð fyrir að fylgi í kjölfarið. Ég studdi með sama hætti skiptingu innanríkisráðuneytisins upp í dómsmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Ég taldi þá breytingu einnig góða og ég held að þegar farið var í breytingar í kjölfar stjórnarráðslaganna 2011 hafi menn kannski farið fram af meira kappi en forsjá í sambandi við þær breytingar sem þá voru gerðar á ráðuneytum og ég er ánægður með að verið er að stíga til baka hvað það varðar.
Ég held að við eigum auðvitað að skoða þessa hluti á hverjum tíma með gagnrýnu hugarfari, en ég er hins vegar ekki endilega hrifinn af því að gera breytingar svo ört eða títt í þessum efnum. Ég held að það sé gott fyrir stjórnsýsluna í landinu að ákveðin festa sé í þessum efnum og að það sé alla vega gerð krafa um formlegt ferli og umræðu áður en veigamiklar ákvarðanir eru teknar í þeim efnum, vegna þess að ég lít svo á að ákvarðanir sem t.d. lúta að því að skipta upp ráðuneytum, stofna ný ráðuneyti eða leggja niður ráðuneyti, séu dálítið stórar ákvarðanir.
Menn hafa vísað til þrískiptingar ríkisvaldsins og skiptingar á milli framkvæmdarvalds og löggjafarvalds. Allt gott um það svo langt sem það nær. En engu að síður er það alltaf löggjafinn sem mótar þann ramma sem framkvæmdarvaldið þarf að starfa innan. Það er löggjafinn sem ákveður leikreglurnar, það er löggjafinn sem ákveður stofnanaskipulagið sem framkvæmdarvaldið á að starfa eftir. Ég er þeirrar skoðunar að partur af því stofnanafyrirkomulagi sé skipting ráðuneyta og tilvist ráðuneyta af því að við höfum það fyrirkomulag almennt að framkvæmdarvaldið er í öllum sínum störfum bundið af lögum. Það þarf lög til að stofna til verkefna á vegum ríkisins. Það þarf lög til að stofna stofnanir á vegum ríkisins, stofnanir verða ekki til á vegum ríkisins öðruvísi en að fyrir því sé lagastoð. Ég álít að það eigi við um ráðuneyti sem ýmsar aðrar stofnanir. Ég tel að við ættum, frekar en að draga úr aðkomu Alþingis að þessu fyrirkomulagi eins og mér hefur heyrst örla á í ræðum sumra ræðumanna í dag, að auka aðkomu Alþingis í þessum efnum. Þá erum við að tala um skipulagið, stofnanaskipulagið og það fyrirkomulag sem framkvæmdarvaldið starfar eftir. Auðvitað er það ekki endilega þannig að Alþingi eigi að vera með puttana í einstökum ákvörðunum framkvæmdarvaldsins umfram það sem lög kveða á um, en það hlýtur alltaf að vera þingið sem setur hinn lagalega ramma sem framkvæmdarvaldið þarf að starfa innan og þetta er í mínum huga hluti af því.
Fyrirkomulag þessara mála er með ýmsum hætti í löndunum í kringum okkur og hefur verið með ýmsum hætti hér á landi. Ég held að það sé alveg ástæða til að rifja það upp að ástæða þess að ráðuneytaskipan var fest í sessi með stjórnarráðslögum frá 1970 var sú að það hafði verið töluverð lausung í þeim efnum á árunum og áratugunum þar á undan. Sum ráðuneyti áttu sér lagastoð meðan önnur áttu það ekki og á þeim tíma, fyrir tæpum 50 árum, var það samdóma álit helstu fræðimanna á sviði stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttar að þörf væri á að koma þessu í fastara form og binda með skýrari hætti í lög hvernig þetta fyrirkomulag var, vegna þess að menn töldu reynsluna sem hafði þá myndast á einhverjum áratugum, ekki góða.
Nú kann að vera að þetta hafi verið of stíft eða þungt í vöfum, en það hindraði það þó ekki að í gildistíð stjórnarráðslaganna frá 1970 yrðu breytingar á ráðuneytum eða breytingar yrðu á fjölda ráðuneyta eða annað þess háttar. Þá voru með lögum stofnuð ný ráðuneyti og öðrum skipt upp, þannig að þó að þetta væri lögbundið með mjög stífum hætti þá hindraði það ekki að breytingar yrðu.
Hvað sem því líður vildi ég rifja það upp að breytingarnar sem áttu sér stað 2011 voru umdeildar og átakamál í þinginu. Þar toguðust á þau sömu sjónarmið og hafa komið fram í þinginu í dag hvað þetta atriði varðar. Það voru auðvitað fleiri atriði í þessu sem voru umdeild, en hvað þetta atriði varðar þá var spurningin sú, sem menn tókust á um, hvort það ætti að vera ákvörðun framkvæmdarvaldsins og ákvörðun forsætisráðherra fyrst og fremst hvernig þessum málum yrði háttað, eða hvort þingið ætti að eiga einhverja aðkomu þar að. Niðurstaðan var ákveðin málamiðlun og menn geta rakið sig í gegnum umræður og nefndarálit og annað, breytingartillögur, í þessum efnum. Breytingartillagan sem var á endanum lögð fram fyrir 3. umr. og samþykkt gekk út á það hvað þetta atriði varðaði, þ.e. tilurð ráðuneytanna, að þá þyrfti forsætisráðherra að koma með þingsályktunartillögu til þingsins og fá stuðning þingsins til að gera breytingar í þeim efnum. Í því fólst ákveðin málamiðlun milli hinna ólíku sjónarmiða í þessum efnum, en niðurstaðan var hins vegar að mínu mati ásættanleg hvað það varðaði og tryggði alla vega ákveðna lágmarksaðkomu þingsins í þessum efnum.
Ég verð að vera þeirrar skoðunar að í breytingunni sem átti sér stað á þeim tíma, breytingunni sem var samþykkt á endanum eftir töluvert tog og pólitísk átök í þinginu, hafi falist, ólíkt því sem 1. minni hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur í nefndaráliti sínu, krafa um efnislega umfjöllun af hálfu þingsins, þ.e. ekki var bara verið að óska eftir því að þingið léti í ljós álit sitt á því hvort breytingin sem lögð væri til væri í samræmi við gildandi lög. Ekki var bara verið að biðja um einhverja, hvað á ég að segja, formlega skoðun á því hvort breytingin væri heimil lögum samkvæmt eða ekki, heldur var verið að falast eftir því eða ætlast til þess af hálfu þingsins að það tæki efnislega afstöðu til málsins. Þess vegna finnst mér 1. minni hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar skauta svolítið fram hjá því að taka efnislega afstöðu til þess hvort að skipta eigi velferðarráðuneytinu upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti eða ekki. Mér hefði þótt betra að heyra viðhorf þingmanna til þess, vegna þess að það skiptir auðvitað máli að efnisleg afstaða liggi fyrir. Ég held að menn hljóti að sjá að það er ekki undir neinum kringumstæðum þannig að mál séu borin fram af hálfu forsætisráðherra, lögð fram á þingi, bara til að fá upplýsingar um hvort málið standist lög eða ekki, eða tillagan standist lög eða ekki. Það eru aðrir aðilar í þjóðfélaginu sem eru til þess bærir að skera úr um það hvort lög eru virt eða ekki. Verið er að kalla eftir efnislegri afstöðu og mér finnst 1. minni hluti, sem hefur auðvitað rétt til sinna skoðana, fara svolítið fram hjá þessu atriði í nefndaráliti sínu og þeim ræðum sem hafa verið fluttar.
Ég ætla ekki, hæstv. forseti, að hafa þessa ræðu lengri. Ég met það svo miðað við niðurstöðu meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem felur í sér stuðning við málið og afstöðuna sem kemur fram í niðurstöðu minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem gerir ekki athugasemd en tekur ekki efnislega afstöðu, ef ég skil það rétt, þá held ég að málið fái framgang í þinginu. En það á ég hins vegar kannski sameiginlegt með sumum sem hafa talað að ég tel að efni séu til þess að ákvæði laganna um Stjórnarráð Íslands að þessu leyti séu tekin til einhverrar umræðu og skoðunar. Við erum ekki að gera það með formlegum hætti hér, en ég held að það sé alveg tilefni til þess. En ég er hins vegar ekki viss um að við séum öll sammála um niðurstöðuna í þeim efnum eins og komið hefur fram í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað hér.