breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Þetta eru áhugaverðar vangaveltur allt saman og gott að við eigum hér í einnar mínútu andsvörum uppsúmmeringu á löngum umræðum sem áttu sér stað fyrir sjö árum síðan. Mér finnst þetta athyglisvert sjónarmið og einnar messu virði að ræða það sem hv. þingmaður hefur komið hér með. Svo langar mig til að biðja hv. þingmann að útskýra, af því að mér finnst í umræðunni hafa alltaf verið gengið út frá því að vilji forsætisráðherra sé bara vilji meiri hluta þingsins, þ.e. þetta sé alltaf samhljóma, en það er ekki alltaf raunin: Hvað ef það er minnihlutastjórn eða gefum okkur þá stöðu að einhverjir stjórnarliðar styðji ekki stjórnina í öllum málum? Er það þá orðið neitunarvald einstakra stjórnarþingmanna um það hvort eigi að skipta upp ráðuneytum eða ekki? Getur löggjafarvaldið meinað framkvæmdarvaldinu (Forseti hringir.) í minnihlutastjórn að skipa málum með þeim hætti sem það kýs?