149. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2018.

fjáraukalög 2018.

437. mál
[12:10]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og verð að segja að það er afar óheppilegt að prentvilla sé í svo mikilvægu skjali eins og ráðherrann greindi frá áðan. Það er full þörf á að mæta þeim vanda sem kirkjugarðarnir standa frammi fyrir og ég vænti þess að ríkisstjórnin skoði það.

Síðan vildi ég spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í vanmatið á lífeyrisskuldbindingum hjá Brú lífeyrissjóði. Hvað liggur þar að baki?

Á bls. 72 er fjallað um sjúkrahótelið. Dráttur á opnun þess gerir það að verkum að kaupa þarf þjónustu frá öðrum hótelum. Þar er um að ræða einar 40 milljónir og þá spyr maður: Þarf ríkissjóður að bera kostnað af þessu? Verður þetta sótt til þess sem ber ábyrgð á þessari seinkun?

Síðan er gert ráð fyrir 491 milljón til rammaáætlana Evrópusambandsins um menntun, rannsóknir og fleira. Það kemur fram að þetta er samningsbundin hækkun og þá spyr maður sig: Hvernig getur samningsbundin hækkun verið ófyrirséð og óvænt? Ég get ekki séð að þetta eigi heima í fjáraukanum.

Á bls. 47 er yfirtaka á lífeyrisskuldbindingum Bændasamtaka Íslands sem kostar 1,9 milljarða. Hverjar eru forsendurnar að baki því að þessi samningur er gerður umfram t.d. bara aðra launþega? Hefði ekki verið eðlilegt að gera óháða úttekt á stöðu sjóðsins og afla skýringa á því hvers vegna staðan er þessi?

Varðandi Vestmannaeyjaferjuna þarf að bæta í 117 milljónum vegna seinkunar á henni. Hver ber ábyrgð á því? Verða sóttar bætur til skipasmíðastöðvarinnar? Það væri ágætt að ráðherra kæmi inn á það.

Hið sama má segja um Grímseyjarferjuna. Þetta eru rúmar 50 milljónir og það kemur fram að viðgerðir hafi verið ófullnægjandi á árunum 2007–2008. Hver ber ábyrgð á því? Á ríkissjóður bara að sætta sig við að borga þetta? Eða verður sótt til þess aðila sem framkvæmdi þessa viðgerð sem reyndist ófullnægjandi?