fjáraukalög 2018.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og er sammála ráðherra með að við þurfum að skoða á hvaða grunni við erum að skoða afkomu ríkissjóðs. Við hljótum að þurfa að gera það alltaf á sama grunni. Ég fæ ekki betur séð, að teknu tilliti til þeirrar aukningar í lífeyrisskuldbindingunum sem okkur er gert að gjaldfæra samkvæmt nýjum reikningsskilavenjum, en að afkoman af ríkissjóði sé í besta falli engin, að afgangurinn sé nokkuð nálægt núlli þegar tekið er tillit til þessarar 31 milljarðs gjaldfærslu sem er þá vegna breyttrar reikningsskilavenju. Ég held að það sé ákaflega mikilvægt að við séum ekkert að blekkja okkur um afkomu ríkissjóðs frá einum tíma til annars því að það skapar mjög hættulegt fordæmi ef við vitum síðan af kostnaðarliðum eins og viðbótargjaldfærslu á lífeyrisskuldbindingum sem okkur ber að gjaldfæra en við horfum einhvern veginn fram hjá í afkomu ríkissjóðs í heild. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að kokka bækurnar.
Það sem ég velti fyrir mér í seinni spurningu snýr einmitt að almennum varasjóði. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir að honum hefði í raun og veru þegar verið eytt en þegar ég horfi á þær tölur sem hér er komið með í fjárauka, eins og kirkjujarðasamkomulag og reyndar mætti nefna þarna fleiri kostnaðarliði — kirkjujarðasamkomulagið er vitað, við afgreiddum það líka í fjárauka í fyrra þannig að það er ekkert óvænt við þau útgjöld í sjálfu sér.
Ef við horfum á hvernig almenna varasjóðnum hefur verið varið af hálfu þessarar ríkisstjórnar hefur hún tekið ákvörðun um aukin útgjöld sem færð hafa verið á almennan varasjóð en kemur síðan með fjárauka upp á þá útgjaldaaukningu sem hún hefði átt að eiga svigrúm fyrir í almenna varasjóðnum en var búin að eyða. Er ekki hættulegt að setja þannig fordæmi að hægt sé að taka nýjar (Forseti hringir.) útgjaldaákvarðanir út úr almennum varasjóði en koma svo bara með fjárauka fyrir þingið til að samþykkja fyrir rest?