149. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2018.

fjáraukalög 2018.

437. mál
[12:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég hef rakið eru í sjálfu sér efnislega nákvæmlega sömu skilyrðin fyrir því að ráðstafanir fari af varasjóði og að leitað verði heimilda í fjárauka. Við höfum sömuleiðis sett viðmið um að það séu fyrst og fremst stærðir sem eru að hreyfast, eins og verðlagsbreytingar og réttindamál, sem fari af varasjóðnum. Upp að vissu marki má segja að sá liður sem snýr að vegamálum hafi verið dálítið óvanalegur. Þess vegna var líka ákveðið að koma sérstaklega til fjárlaganefndar fyrr á árinu og fara yfir það mál í smáatriðum til að tryggja fullt gegnsæi varðandi þessa ráðstöfun varasjóðsins og sömuleiðis var greinargerðum nýlega skilað til ríkisendurskoðanda um þau mál. Ég hygg að fjárlaganefnd hafi átt í samskiptum við hann.

Varasjóðurinn er að því leytinu til frábrugðinn ráðstöfunum í gegnum fjáraukalögin að segja má að það sé minna gegnsæi gagnvart þinginu og þess vegna finnst mér að það sé ágætisviðmið að séu menn í vafa um hvorum megin útgjöldin eigi að leggjast sé betra að þau fari í gegnum fjáraukann þar sem menn fara þá í gegnum umræðu í þinginu og í nefndavinnu sem kallar á sérstakt samþykki þingsins en varasjóðurinn er ekki háður því.

Ég tel að í einu og öllu hafi verið eðlilega staðið að þessum skilum milli ráðstöfunar af varasjóði og fjáraukalögum (Forseti hringir.) á árinu 2018.