rannsókn kjörbréfs.
Í dag, mánudaginn 10. desember, barst svohljóðandi bréf frá varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Ágúst Ólafur Ágústsson gæti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.
„Þar sem Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, hefur af persónulegum ástæðum ákveðið að taka sér launalaust leyfi frá þingstörfum frá 10. desember 2018 til og með 14. janúar 2019 óska ég eftir því að 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Ellert B. Schram, taki á meðan sæti á Alþingi. 1. og 2. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Andri Thorsson,
varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar.“
Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Ellerti B. Schram. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.